Rússinn útskrifaður af gjörgæslu 15. september 2004 00:01
Áður óþekktar boðleiðir voru notaðar þegar óskað var eftir að rússneskur sjóliði, sem slasaðist um borð í herskipi djúpt suður af landinu í gær, yrði sóttur og fluttur á sjúkrahús hér á landi. Skipherrann á herskipinu sem sjóliðinn er á hafði samband við rússneska sendiráðið í Reykjavík og bað það að útvega aðstoð. Það hafði samband við bandaríska sendiráðið sem aftur kom óskinni áfram til Varnarliðsins sem sendi tvær þyrlur af stað. Varnarliðið óskaði svo efitr því við Landhelgisgæsluna að hún sendi fylgdarflugvél með þyrlunum vegna þess hve flugið var langt. Gæslan brást skjótt við og sendi Fokker-vélina með þyrlunum. Herskipið setti á fulla ferð til lands og var u.þ.b. 180 sjómílur suður af Vík þegar þyrlurnar komu að því. Vel gekk að ná sjóliðanum um borð og lenti þyrlan með hann við Landspítalann um klukkan sex í gær. Áður en beiðni um aðstoð barst hafði sjóliðinn, sem hlaut innvortis blæðingar eftir þungt högg á brjóstkassann, verið í þriggja klukkusutnda aðgerð á sjúkrastofunni í herskipinu. Við komuna til Reykjavíkur gekkst hann þegar undir aðgerð. Að sögn læknis tókst hún vel í alla staði og er hann nú útskrifaður af gjörgæsludeild og kominn á legudeild. Ekki er ákveðið hvort herskipið komi hingað til hafnar til að sækja sjóliðann eða hann verði sendur út með flugi
Fréttir Innlent Mest lesið Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Erlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Erlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Innlent Fleiri fréttir Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum Sjá meira