Lífið

Zetu næstum rænt

Byssumenn reyndu að ræna velsku leikkonunni Catherine Zeta-Jones þegar hún var á heimleið frá tökustað í Mexíkó. Byssugengið reyndi að neyða bíl hennar af veginum en lífverðir hennar komu henni til bjargar og veittu glæpamönnunum eftirför. Fjórir voru handteknir eftir fjögurra stunda eltingaleik. Zeta-Jones var í Mexíkó við tökur á myndinni Legend of Zorro, framhaldi myndarinnar The Mask of Zorro frá 1998. Leikkonan hefur ásamt mótleikaranum Antonio Banderas verið umkringd lífvörðum frá því tökur hófust enda mannrán ansi tíð í Mexíkó. Zeta-Jones verður í Mexíkó fram að jólum eða þar til tökum á myndinni er lokið.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.