Leirbindiefni úr flugvél 10. september 2004 00:01
Allt að 40 ferkílómetra svæði í miðlunarlóni Kárahnjúkavirkjunar, Hálslóni, getur farið undir leir þegar vatnsborð stendur sem lægst í lóninu. Samkvæmt upplýsingum frá Borgarskipulagi samsvarar þetta svæði allri "gömlu" Reykjavík, þar með töldu Breiðholti, Selásnum og Grafarvogi. Sérfræðingar hjá Landsvirkjun og Landgræðslunni leita nú ákaft leiða til að hefta fok á leir sem kynni að fara af stað ef hann nær að þorna, þegar lágt stendur í lóninu og það hvessir í veðri. Fínasta leirrykið rýkur út í loftið undir þeim kringumstæðum, að sögn Péturs Ingólfssonar verkfræðings hjá Landsvirkjun. Pétur sagði, að vatnsborð yrði að lægst í lóninu á vorin og kæmist í meðalári ekki aftur í fulla hæð fyrr en í byrjun ágúst . Umfangsmiklar rannsóknir væri í gangi sem miðuðu að því að hefta fok úr lóninu yfir sumarmánuðina. Þar væru meðal annars væru í athugun möguleikar á að dreifa rykbindiefni úr flugvél Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri hafði áður sagt við blaðið, að hann væri ekki trúaður á notkun rykbindiefna til að hefta leitfokið. en benti á afkastamiklar áveitur sem notaðar væru á stórum landbúnaðarsvæðum erlendis. "Við erum einnig farnir að huga að vökvun, það er að nýta árnar þarna til að renna niður á skipulagðan hátt, til þess að halda vissum flötum svæðum blautum," sagði Pétur. Hann sagði enn fremur, að verkfræðistofan Vatnaskil hefði reiknað út módel fyrir hversu mikið efni fyki út, hversu mikið efni væri á ferðinni í versta stormi ef ekki tækist að dæla á það og binda í tíma. Ef vatnsyfirborð í lóninu væri 570 metrar, sem það væri talið geta farið lægst, þá væru það 100 tonn af leir sem gætu farið af stað við verstu aðstæður, bætti Pétur við og undirstrikaði að við rannsóknarvinnu sína til varnar leirfoki miðuðu menn ætíð við ystu mörk.
Fréttir Innlent Mest lesið Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Innlent Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Barn í hoppukastala sem tókst á loft Innlent Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Innlent Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Innlent Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Fleiri fréttir „Myndi hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti“ Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Banderofólki brottvísað og hinsegin dagar hafnir Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Barn í hoppukastala sem tókst á loft Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Sjá meira