Lífið

Tabasco kanínufæla

Bændur í Hollandi hafa fundið upp nýstárlega aðferð til að verjast ágangi kanína sem sækja í kál, gulrætur og hveiti. Þeir hafa úðað bandarískri tabasco sósu í kálgarðanna með þeim afleiðingum að kanínurnar endasendast hátt upp í loftið meðan þeim svelgist á góðgætinu. Að því loknu leita þær skjóls og hugsa sig um tvisvar áður en þær heimsækja kálgarðana aftur. Dýraverndunarsamtök í Hollandi fagna framtakinu og segja það mun geðfelldara en að bændur séu á vappi um kálgarða sína með haglabyssur.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.