Innlent

Annar skipverjanna látinn

Annar skipverjanna á kanadísku skútunni sem sökk síðdegis vestur af landinu er látinn. Hinn er óslasaður en er enn á sjúkrahúsi. Björgunarstjórnstöðin í Halifax í Kanada hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar  klukkan 17 í dag og tilkynnti að kanadísk skúta væri að sökkva um 25 sjómílur suðvestur af Malarrifi.  Björgunarstjórnstöðin í Halifax hafði þessar upplýsingar frá ættingjum áhafnar skútunnar sem höfðu náð símasambandi við þá með gervihnattasíma.  Um borð í skútunni voru tveir menn.  Símasamband við skútuna hafði rofnað og tilraunir til ná í hana aftur höfðu ekki borið árangur. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kallaði út áhöfn TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, klukkan 17:04 í beinu framhaldi af samtali við björgunarstjórnstöðina í Halifax. Einnig var haft samband við  Tilkynningarskyldu íslenskra skipa og óskað eftir að neyðarkall yrði sent út á rás 16 svo að skip á svæðinu fengju upplýsingar um málið.  Áhöfn TF-SYN, Fokker flugvélar Landhelgisgæslunnar, var einnig kölluð út ásamt Flugbjörgunarsveitinni til að leita að skútunni.  Þá var Varnarliðið beðið um að setja þyrlu í viðbragðsstöðu. TF-LIF fór í loftið kukkan 17:28.  Áhöfn hennar hafði samband við stjórnstöð klukkan 18:05 og hafði leit þá engan árangur borið. Aðstæður til leitar og björgunar voru ekki góðar. Mjög hvasst var á svæðinu eða 20-25 metrar á sekúndu og skyggni um 2 kílómetrar og lágskýjað.  Ölduhæð var 4-5 metrar.  Vegna leitarskilyrða fór TF-SYN, flugvél Landhelgisgæslunnar, ekki í loftið. Skömmu síðar, eða klukkan 18:13 sá áhöfn TF-LIF mennina í sjónum.  Annar þeirra var í björgunargalla en hinn í vesti.  Búið var að hífa þá um borð klukkan 18:20. Að sögn Einars Valssonar stýrimanns í TF-LIF var með ólíkindum að mennirnir skyldu finnast þetta fljótt því þeir voru í dökkum göllum og aðstæður til leitar þetta slæmar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×