Sýknaður af manndrápi af gáleysi 27. ágúst 2004 00:01
Fjörtíu og fjögurra ára Þjóðverji var, í Héraðsdómi Reykjaness, sýknaður af manndrápi af gáleysi þegar hann ók ölvaður og velti bíl á Krísuvíkurvegi þann 24. júlí síðastliðinn. Einn farþeganna í bílnum lést af áverkum sínum fimm sólarhringum eftir slysið. Bílstjórinn var sakfelldur fyrir ölvunarakstur og sviptur ökuréttindum í sex mánuði. Farbann sem Þjóðverjinn var úrskurðaður í skömmu eftir slysið rann út í gær. Þegar dómurinn var kveðinn upp vildi ákæruvaldið fá það staðfest hjá manninum að verjanda hans yrði heimilt að taka við áfrýjun ef til hennar komi. Þjóðverjanum var einnig gert að greiða sextíu þúsund króna sekt í ríkissjóð innan fjögurra vikna ella sæta fjórtán daga fangelsi. Honum var einnig gert að greiða fjórðung málsvarnarlauna verjanda síns. "Ég er ánægður með að hann skuli vera sýknaður af manndrápi af gáleysi. Það var ekki hjá því komist að hann fengi sekt fyrir ölvunarakstur og sviptingu ökuleyfis, það lá fyrir," segir Hilmar Ingimundarson, verjandi Þjóðverjans, um dóminn. Hilmar segir mikinn létti fyrir skjólstæðing sinn að vera ekki dæmdur fyrir að vera valdur að dauða samstarfsmanns síns. Í dómnum segir: "Þótt sú háttsemi ákærða að aka undir áhrifum áfengis sé bæði refsiverð og ámælisverð verður eigi sakfellt fyrir manndráp af gáleysi fyrir það eitt og sér. Til þarf að koma sönnun um beint orsakasamband milli þess ástands ákærða að vera undir áhrifum áfengis, slyssins og afleiðinga þess þannig að rekja megi slysið til þessa ástands ákærða." Þykir leika vafi á að hann hafi sýnt af sér slíkt gáleysi við akstur þegar slysið varð að það nægi til að dæma hann fyhrir manndráð af gáleysi. Litið er til þess að ekkert bendi til of hraðs aksturs heldur virðist sem hann hafi misst vald á bílnum í beygju. Þar var lausamöl og aðstæður erfiðar og ökumaðurinn var óvanur þeim aðstæðum. Allir vafi kom Þjóðverjanum um í hag.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Fleiri fréttir Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Sjá meira