Borgin beggja vegna borðsins 24. ágúst 2004 00:01
Fyrirtæki í eigu Reykjavíkurborgar og Orkuveitunnar er meðal fyrirtækja sem bjóða í gámaleigu, flutning og losun fyrir þrjár endurvinnslustöðvar Sorpu en tilboðin verða kynnt í dag. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins á Vélamiðstöðin ehf. lægsta tilboð í verkið fyrir eina af endurvinnslustöðvunum. Vélamiðstöðin ehf. hét áður Vélamiðstöð Reykjavíkurborgar en var breytt í einkahlutafélag árið 2002. Stofnendur félagsins og núverandi eigendur eru Orkuveita Reykjavíkur og Reykjavíkurborg, en Orkuveitan er að langstærstum hluta í eigu Reykjavíkurborgar. Reykjavíkurborg er ennfremur stærsti í eigandinn í Sorpu sem er byggðasamlag sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Sú staða er því uppi að fyrirtæki í eigu Reykjavíkurborgar býður í verkefni sem Reykjavíkurborg er langstærsti aðilinn að í gegnum eign sína í Sorpu. Gámaþjónustan hf. er einn þeirra aðila sem buðu í rekstur endurvinnslustöðva Sorpu. Í bréfi til stjórnarmanna í Sorpu spyr Elías Ólafsson, stjórnarformaður Gámaþjónustunnar, hvort það geti talist eðlilegt að aðili í eigu Reykjavíkurborgar bjóði í verk á vegum Sorpu á móti fyrirtækjum á markaðnum. Við breytingu á rekstrarformi Vélamiðstöðvarinnar, sem samþykkt var í borgarráði 10. september 2002, lögðu borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fram bókun þar sem þeir áréttuðu að nauðsynlegt væri að móta með skýrum hætti "hvort Vélamiðstöðin ehf. skuli keppa um verkefni á almennum markaði," eins og segir í bókuninni. "Við höfum ekki haft nein fyrirmæli um að skoða eigendalista þeirra fyrirtækja sem taka þátt í útboði. Það er annarra en stjórnar Sorpu að fjalla um hvort þetta sé eðlilegt," sagði Ögmundur Einarsson, framkvæmdastjóri Sorpu í samtali við Fréttablaðið. Tilboð í þjónustu fyrir endurvinnslustöðvar Sorpu verða gerð opinber í dag klukkan 15 og mun stjórn Sorpu fjalla um tilboðin í kjölfarið. borgar@frettabladid.is
Fréttir Innlent Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Sjá meira