Ósætti með frammistöðu Ítala 19. ágúst 2004 00:01
Óperusöngvarinn Kristján Jóhannsson sem býr á Ítalíu segir ítalska fjölmiðla lítið hafa fjallað um tap Ítala á Laugardalsvelli í gærkvöld. Það bendi til þess að menn séu afar ósáttir við frammistöðuna. Hins vegar afsaki Ítalir sig með því að liðið sem spilaði leikinn í gær hafi verið hálfgert B-lið. Eins og flestir vita eflaust sigruðu Íslendingar Ítali með tveimur mörkum gegn engu í vináttulandsleik í knattspyrnu á Laugardalsvelli í gærkvöld að viðstöddum 20.204 áhorfendum. Leikurinn var fyrsti leikur liðsins undir stjórn Marcelo Lippi og til stóð að byrja stjóratíð hans með glæsibrag, en raunin varð hins vegar önnur. Kristján Jóhannsson óperusöngvari sem býr á Ítalíu segir lítið hafa farið fyrir umfjöllun um eldskírn Lippis í ítölskum fjölmiðlum í morgun. Það segir bara eitt: menn séu mjög ósáttir. Kristján segir Lippi hafa verið að reyna nýjar aðferðir og nýja menn en það hafi einfaldlega ekki gengið upp. Þrátt fyrir tilraunir með nýja leikmenn jánkar Kristján því að leikurinn hafi augljóslega skipt landsliðsmenn Ítalíu miklu máli, enda hafi þeir verið orðnir verulega pirraðir þegar leið á leikinn og ekkert gekk. Hann segir Lippi hafa sagt í viðtali eftir leikinn að þeir þyrftu að fara að taka sig saman í andlitinu. Aðspurður hvoru megin hjarta sitt hafi slegið í leiknum í gær segist Kristján fyrst og fremst hafa viljað sjá góðan leik og það hafi íslenska liðið sýnt, öfugt við það ítalska, og kveðst hann reyndar ekki muna eftir betri leik hjá íslenska knattspyrnulandsliðinu síðastliðinn aldarfjórðung eða svo. Afsakanir eru sjaldnast langt undan þegar réttlæta þarf slaka frammistöðu og segir Kristján Ítali fyrst og fremst líta á leikinn sem undirbúning fyrir alvöruna, á meðan Íslendingar hafi mætt með sitt sterkasta lið og ætlað sér að vinna. Kristjáni fannst Íslendingar þó leggjast of mikið í vörn síðustu tuttugu mínúturnar og ef hann hefði stjórnað liðinu hefði hann látið það sækja út allan leikinn. Hægt er að hlusta á viðtal við Kristján Jóhannesson úr hádegisfréttum Bylgjunnar með því að smella á hlekkinn hér að neðan.
Íslenski boltinn Innlent Mest lesið Kristófer opnar sig um ágreininginn: „Vonbrigði og vanvirðing“ Körfubolti Getur varla gengið lengur Sport Mynd af yngstu dóttur Kobe Bryant vekur lukku Körfubolti Shaq lofar að mæta í kjól ef Gobert verður valinn Körfubolti Segir Messi ákaflega ósáttan með leikbannið Fótbolti Snúa aftur eftir 233 daga framkvæmdir: „Þetta er gamechanger“ Íslenski boltinn Spilaði með KV í gær en má spila með KR í dag Íslenski boltinn Ísland eitt af regnbogaliðunum á Evrópumótinu Fótbolti Shearer öskureiður: „Þetta er bara fáránlegt“ Enski boltinn Barcelona biður UEFA um leyfi Fótbolti Fleiri fréttir C-deildar lið Wycombe stóð í Tottenham Wrexham reynir við Eriksen Spilaði með KV í gær en má spila með KR í dag Reisa varanlegan minnisvarða um Jota úr endurunnu efni Jón Daði meiddur og endurkoman bíður Snúa aftur eftir 233 daga framkvæmdir: „Þetta er gamechanger“ Ísland eitt af regnbogaliðunum á Evrópumótinu Kristófer opnar sig um ágreininginn: „Vonbrigði og vanvirðing“ Segir Messi ákaflega ósáttan með leikbannið Getur varla gengið lengur Dagskráin: Fyrsti leikurinn á nýja KR-vellinum, ensk félög í beinni og formúla Shaq lofar að mæta í kjól ef Gobert verður valinn Mynd af yngstu dóttur Kobe Bryant vekur lukku Mættur aftur tuttugu árum seinna Shearer öskureiður: „Þetta er bara fáránlegt“ Aukaspyrnumark Oumars tryggði Njarðvík stig í toppslagnum „Það er ástæða fyrir því að ég vildi snúa aftur “ „Ótrúlegt að við skyldum ekki klára leikinn fyrr“ Barcelona biður UEFA um leyfi Uppgjör: FH - Fram 3-1 | FH-konur upp i annað sætið Keflvíkingar klúðruðu víti á nítugustu mínútu Dan Burn hjá Newcastle: Verðum svekktir ef Alexander Isak fer Ísak aftur með frábæra innkomu Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Messi dæmdur eftir allt saman í bann fyrir skrópið Gyökeres í flugvél á leið til London Leik lokið: Víkingur - Stjarnan 2-1 | Víkingar galopna fallbaráttuna í fyrsta leik undir nýrri stjórn Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Anton Sveinn og Laufey Rún stálu senunni í Nauthólsvík „Hef mikla trú að það muni ganga upp núna“ Sjá meira
Leik lokið: Víkingur - Stjarnan 2-1 | Víkingar galopna fallbaráttuna í fyrsta leik undir nýrri stjórn