Skattabilið verður minnkað 9. ágúst 2004 00:01
Ríkisstjórnin ætlar að minnka bilið milli þeirra sem greiða skatt af fjármagni og þeirra sem greiða skatt af launatekjum sínum segir Halldór Ásgrímsson, starfandi forsætisráðherra. Íslenskir skattgreiðendur töldu fram nærri sextíu og fjóra milljarða króna í fjármagnstekjur í framtölum fyrir árið í fyrra. Það er fjörutíu prósent meira en árið áður. Skattur af fjármagnstekjum og arði nemur tíu prósentum á meðan skattur af launatekjum er um og yfir fjörutíu prósent. Þetta er umdeilt, margir tala um að auðmenn hagnist helst á þessu fyrirkomulagi eða í það minnsta ekki þeir sem minnst hafi á milli handanna þar sem þeir eigi ekki fé til að verja í hlutafjárkaup. Venjulegir launamenn eigi ekki annars kost en að greiða stóran hluta tekna sinna í sameiginlegan sjóð á meðan þeir ríku verði ríkari. Aðrir benda hins vegar á að lágt skatthlutfall hafi leyst úr læðingi viðskipti með hlutabréf sem ella hefðu ekki orðið og stuðlað að því að fjársterkir Íslendingar borgi skatta hér í stað þess að flýja land. Þá er einnig bent á að fleiri íslenskar fjölskyldur hafi nýtt sér þessa leið til að spara. Lausnin að margra mati, og í raun allra þeirra sérfræðinga sem fréttastofan hefur rætt við, er ekki að hækka fjármagnstekjuskatt heldur lækka tekjuskatt - nokkuð sem ríkisstjórnin hefur þegar lofað. Halldór Ásgrímmson, starfandi forsætisráðherra, segir það ætlun stjórnarinnar að lækka tekjuskatt einstaklinga á næstu árum vegna þess að þörf sé á því. Þetta mun koma betur í ljós í haust að sögn Halldórs.
Fréttir Innlent Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira