Útsendingar RÚV lágu niðri 6. ágúst 2004 00:01
Útsendingar Ríkisútvarpsins lágu niðri í stundarfjórðung á höfuðborgarsvæðinu í morgun. Deildarstjóri hljóðdeildar segir neyðaráætlun hafa farið í gang. Mönnum brá í brún, bæði hlustendum og starfsmönnum, þegar báðar rásir RÚV þögnuðu skyndilega rétt fyrir níufréttir í morgun. Bilun í spennugjafa í útsendingarborði Rásar 2 olli því að útsendingar beggja rása Ríkisútvarpsins féllu niður í morgun. Það eru hins vegar mörg hljóðver í húsinu og þau voru ekki öll rafmagnslaus. Því var gripið til þess ráðs að flytja starfsfólk í önnur hljóðver, og þau tengd inn á dreifikerfið, í staðinn fyrir þau sem voru dauð. Útsendingar á langbylgju og landsbyggðinni hófust því eftir um fimm mínútur. Hins vegar tók um fimmtán mínútur að koma á FM-sendingum á höfuðborgarsvæðinu. Runólfur Þorláksson, deildarstjóri hljóðdeildar Ríkisútvarpsins, segir að vissulega bregði mönnum þegar svona gerist. Hins vegar séu til margreyndar öryggisráðstafanir sem tryggi að jafnvel þótt allt fari á versta veg sé með einum eða öðrum hætti hægt að hefja útsendingar á nýjan leik eftir tiltölulega skamman tíma. Það sé m.a.s. hægt þótt allt rafmagn færi af húsinu því neyðarbúnaðurinn er rafhlöðudrifinn. Í allra versta falli er svo mögulegt að komast inn á dreifikerfi RÚV annars staðar en í húsinu í Efstaleiti segir Runólfur.
Fréttir Innlent Mest lesið Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Innlent Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Innlent Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins Erlent ICE dregur saman seglin í Minneapolis Erlent „Sprengjuflugvélar er ógnin sem við sjáum hér“ Innlent „Eins og við séum komin aftur á 1. mars 1989“ Innlent Ósammála um að það sé kostur að vera formaður utan þings Innlent Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni Innlent Átta ára dómur Sigurðar Ragnars staðfestur Innlent Tengslanet veikara og andleg líðan verri í dag en fyrir rýmingu Innlent Fleiri fréttir Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Ósammála um að það sé kostur að vera formaður utan þings Tengslanet veikara og andleg líðan verri í dag en fyrir rýmingu „Sprengjuflugvélar er ógnin sem við sjáum hér“ „Eins og við séum komin aftur á 1. mars 1989“ Vinnur fallega muni úr íslenskum trjám ASÍ og SA telja stjórnvöld á villigötum Jákvæð skref hafi verið tekin í vinnuhópi um málefni Grænlands Forstjóri í beinni, herþotur og bjór á vellinum Stúlkan er fundin Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni Ingibjörg fljót að rífa upp boxhanskana Hækkuðu gjaldið í skugga stúdentamótmæla Bjórinn nú leyfður á vellinum Íhugar að bjóða fram til varaformanns Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Lýsa eftir bíl sem var stolið fyrir utan Landspítalann Rafmagnslaust á Siglufirði Ríkisfjármálaleg tímasprengja, mistök eða tímabært réttlætismál? Átta ára dómur Sigurðar Ragnars staðfestur Vísbendingar um gerviverktöku í geiranum Hálf-íslenskur hermaður hluti af sænsku herflugsveitinni Mikið svifryk þrátt fyrir rykbindingu Blikkuðu í klukkustundir vegna skaddaðs jarðstrengs Samtök atvinnulífsins höfðu betur í Félagsdómi Fékk „hjálp“ frá heilbrigðiseftirlitinu til að velja sig sjálfa Baráttan um formannsembætti Framsóknar Viðbrögð Ölmu mikil vonbrigði Lýsa miklum vonbrigðum með viðbrögð Ölmu Vilja ráðast í breytingar á gamla bandaríska sendiráðinu Sjá meira