Þriðja óhappið á viku 6. ágúst 2004 00:01
Bíll í eigu Borgarverks, sama fyrirtækis og á vörubílinn sem fór fram af einbreiðri brú yfir Laxá í Dölunum, varð alelda rétt fyrir utan Stykkishólm í gærkvöld. Þá rann þriðji vörubíllinn í eigu fyrirtækisins út af vegi í Norðurárdal í síðustu viku. Að sögn lögreglunnar á Stykkishólmi er talið að eldurinn hafi kviknað út frá vél bílsins. Tveir menn voru í bílnum og þeir stukku út þegar þeir urðu varir við reyk í stýrishúsi. Þeir sáu þá eld koma undan bílnum sem varð alelda á örskammri stund. Hjólaskófla á palli bílsins var einnig ónýt þegar slökkviliðið á Stykkishólmi kom á staðinn. Tveir bílar í eigu Borgarverks hafa því gjöreyðilögðast í sömu vikunni. Frumherji hefur skoðað bifreiðina sem valt út af brúnni í Dölunum en hún stóðst ekki aðalskoðun í apríl, meðal annars vegna athugasemda sem gerðar voru við hemlabúnað. Eigandinn fékk mánaðarfrest til að láta gera við búnaðinn en þegar slysið varð hafði ekki enn verið komið með bílinn í endurskoðun. Lögreglan í Búðardal segir þó að hemlabúnaður bifreiðarinnar hafi virst mjög nýlegur við fyrstu skoðun. Tæknistjóri ökutækjasviðs Frumherja vildi ekki staðfesta þetta í samtali við fréttastofu í dag en tók fram að ekki sé nóg að búnaður sé nýr heldur þurfi stillingar einnig að vera réttar. Kantur gaf sig svo undan þriðja bílnum í eigu Borgarverks en sá lenti utan vegar í Norðurárdal í síðustu viku. Borgarverk er fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið með starfsemi í fjörutíu ár. Einn eigendanna, Óskar Sigvaldason, sagði í samtali við fréttastofu að fyrirtækið leigði út tólf bíla, þrjátíu tæki og hefði fjörutíu manns í vinnu. Hans segir tíðni óhappa á bifreiðum fyrirtækisins hafa verið lága, óhöppin undanfarið séu tilviljun ein og milidi að engin slys hafa orðið á fólki. Þá tók hann fram að bíllinn sem brann, sem og bíllinn sem lenti utan vegar í Norðurárdal, hafi verið með fulla skoðun.
Fréttir Innlent Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira