Morðvopnið hjá líkinu í gjótunni 4. ágúst 2004 00:01
Lögregla fann í dag kúbein sem talið er að Hákon Eydal hafi notað til að myrða Sri Ramawati. Það lá í sömu gjótu og líkið af henni sem fannst í Hafnarfjarðarhrauni í gær. Rannsóknin á hvarfi Sri, sem hefur staðið í mánuð, hefur tekið á sig ólíklegustu myndir. Fyrrverandi sambýlismaður hennar, Hákon Eydal, sem verið hefur í haldi lögreglu í tæpan mánuð, þagði fyrst þunnu hljóði um afdrif Sri í þrjár vikur. Í síðustu viku losnaði svo um málbeinið. Fyrst upplýsti Hákon að hann hefði hent líkinu af henni í sjóinn við Hofsvík á Kjalarnesi og daginn eftir viðurkenndi hann að hafa banað Sri með barefli og sett líkið af henni í stóran drapplitaðan póstpoka frá sænsku póstþjónustunni. Eftir árangurslausa leit í Kollafirði og nágrenni fór lögregla að hallast að því að saga Hákons um afdrif líksins væri uppspuni og í gær sagði Hákon þeim nýja sögu, um að líkið væri falið í Hafnarfjarðarhrauni. Sú saga reyndist sönn. Í gjótu, miðja vegu milli Slunkaríkis og Fjárborgarinnar í hrauninu, fann lögregla líkið um kvöldmatarleytið í gær. Tæknideild lögreglu var að störfum við gjótuna í dag og fann þá kúbein í gjótunni sem talið er að Hákon hafi notað til að veita Sri þá áverka sem leiddu til dauða hennar. Ómar Smári Ármannsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að Hákon hafi farið með líkið af Sri út í hraunið um miðbik sunnudagsins, en hann myrti hana að morgni dags. Það verður að telja nokkra fífldirfsku að koma líki fyrir á þessum stað á miðjum frídegi því nokkuð er um að fólk fari í gönguferðir á þessu svæði. Til að mynda mætti fréttamaður manni og hundi í göngutúr um hraunið í dag. Ómar Smári segir að líkið hafi hins vegar verið mjög vel hulið grjóti og því hefði verið afar erfitt að finna það án hjálpar þess sem kom því þar fyrir. Hákon hefur ekki verið yfirheyrður í dag en rannsókn málsins heldur áfram.
Fréttir Innlent Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Fleiri fréttir Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Sjá meira