Innlent

Óbreytt vísitala neysluverðs

Landsbankinn spáir óbreyttri vísitölu neysluverðs í ágúst sem myndi þýða að 12 mánaða verðbólga yrði áfram 3,6%. Gera má ráð fyrir að útsöluáhrif vegi töluvert þungt til lækkunar en hækkun bensínverðs að undanförnu mun vega á móti að stórum hluta segir í tilkynningu frá bankanum. Þá er gert ráð fyrir að kerfisbreytingar Íbúðalánasjóðs muni halda aftur af hækkunum á húsnæðislið vísitölunnar í ágúst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×