Víðtæk leit að 20 ferðamönnum 30. júlí 2004 00:01
Óttast var um hóp tuttugu ferðamanna í gær eftir að neyðarkall kom í gegnum samtal á milli Ferðafélags Íslands í Reykjavík og skálavarðar í Hvanngili. Björgunarsveitir á Suðurlandi héldu af stað á hálendið á öðrum tímanum í gær. Ekkert var vitað um hópinn þegar blaðið fór í prentun í gærkvöldi. Hjálparbeiðnin barst frá Íslendingi sem sagðist vera með tuttugu manna hóp franskra ferðamanna sem allir væru orðnir meira eða minna veikir. Var talið að um matareitrun væri að ræða. Engar staðsetningar komu fram um hvar hópurinn væri niðurkominn. Beiðnin barst um rás Ferðafélags Íslands í samtali félagsmanns í Reykjavík við skálavörð í Hvanngili. Ferðafélagsmaðurinn í Reykjavík heyrði kallið en skálavörðurinn ekki. Þá heyrðu leiðsögumaður við Nýjadal og áhugamaður í Reykjavík einnig kallið en þeir voru með stillt á rásina sem kallið kom um. Björgunarsveitir frá Hellu, Hvolsvelli, Landeyjum og Álftaveri hófu leitina. Frá Rangárvallasýslu fóru um fjörutíu leitarmenn á sjö bílum. Að sögn Svans Lárussonar, formanns Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu, var farið í alla skála sem ekki eru skálaverðir í frá Kerlingafjöllum og inn að Snæfelli. Auk þess var haft samband við alla skálaverði á svæðinu og alla ferðaþjónustuaðila en enginn kannaðist við hópinn. Svanur segir kallið hafa komið um endurvarpa á Háskerðing sem er fyrir sunnan Hrafntinnusker. Gallinn sé þó að endurvarpinn skanni gríðarlega stórt svæði. Í gærkvöldi voru hópar ekki farnir að ganga en til þess verður að hafa einhverja staðsetningu til að miða við. Ekki er hægt að útiloka að um gabb hafi verið að ræða þó kunnáttumenn telji það ólíklegt.
Fréttir Innlent Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Fleiri fréttir Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Sjá meira