Hluthöfum býðst skjótfenginn gróði 27. júlí 2004 00:01
Stórir hluthafar í KB-banka eiga möguleika á auðveldum gróða í mesta hlutafjárútboði Íslandssögunnar sem hefst á fimmtudaginn kemur. Hluthöfum býðst að auka hlutafé sitt á sérkjörum og sannast þá hið fornkveðna, að hinir ríku verða enn ríkari. Skjótfenginn og fyrirhafnarlaus gróði býðst þeim hluthöfum KB banka sem nýta sér forkaupsrétt í hlutafjárútboði bankans sem hefst á fimmtudag. Útboðið verður að líkindum stærsta hlutafjárútboð Íslandssögunnar. Boðnir verða út 40 milljarðar króna og eiga allir hluthafar forkaupsrétt úr þeirri upphæð í hlutfallslegu samræmi við hlutafjáreign þeirra í bankanum núna. Hver hlutur býðst á 360 krónur, en kauptilboð í bréf bankans í morgun voru upp á 420 krónur, þannig að forkaupsrétthafar fá hvern hlut á 60 króna undirverði. Þannig getur maður, sem á hlutabréf í bankanum upp á tíu milljónir króna að markaðsverði, átt rétt á að kaupa bréf fyrir tvær og hálfa milljón í viðbót á þessum kjörum. Þau bréf getur hann selt strax með rúmlega 400 þúsund króna hagnaði, m.a.s. án þess að leggja fyrst út eina krónu því hann þarf ekki að greiða bankanum viðbótina fyrr en 20. ágúst, eða eftir að hann hefur selt þau aftur með hagnaði. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hjá verðbréfafyrirtækjum ætla þau undantekningarlaust að nýta forkaupsréttinn fyrir hönd þeirra sem þau annast eignastýringu fyrir og miðlarar búast við að svo til allir muni nýta sér forkaupsréttinn. Einnig er búist við að langflestir ætli að eiga viðbótina áfram því nú séu miklar vonir bundnar við vöxt bankans, sérstaklega vegna væntinga um að hann eignist meirihluta í breska bankanum Singer og Freelander sem KB banki á nú þegar liðlega tuttugu prósent í. Heimild til viðbótarhlutafjárútboðs upp á 40 milljarða í viðbót er m.a. sögð tengjast þeim hugmyndum. Loks má nefna að Svíar hafa tekið KB banka í sátt á sænska markaðinum eftir talsverða tortryggni framan af.
Fréttir Innlent Mest lesið „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Innlent Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt Innlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Erlent Fleiri fréttir Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Sjá meira