Sprengihleðsla eyðilögð 18. júlí 2004 00:01
Skipstjórinn á togaranum Brettingi hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar um hálf fimm leytið á laugardaginn eins og kemur fram í fréttatilkyningu frá Landhelgisgæslunni. Tilkynnti skipstjórinn um hlut sem hafði komið upp með veiðarfærunum og gæti hugsanlega verið tundurdufl. Skipið var að veiðum í svokölluðum Rósagarði út af Suðausturlandi. Vakthafandi sprengjusérfræðingur sprengjudeildar Landhelgisgæslunnar staðfesti að um sprengihleðslu úr bresku tundurdufli væri að ræða. Togarinn sigldi þá til hafnar við Fáskrúðsfjörð og var kominn þangað korter fyrir miðnætti. Þá fóru tveir sprengjusérfræðingar um borð í togarann og strax kom í ljós að sprengihleðslan var 135 kílógrömm og úr bresku tundurdufli. Forsprengjan var ekki til staðar en enn var hluti af sprengiefni í hleðslunni og hún því tekin í land í samvinnu við lögregluna á Fáskrúðsfirði. Sprengihleðslan var síðan brennd og eyðilögð. Rósagarðurinn hlaut nafn sitt vegna hins mikla fjölda tundurdufla sem þar var lagt. Umfangsmiklar tundurduflalagnir Breta fóru þar fram á árunum 1940 til 1943. Þá voru yfir níutíu þúsund tundurduflum af ýmsum gerðum lagt í sjó á svæðinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Erlent Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Innlent Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Innlent Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Innlent Hvalfjarðargöng eru lokuð Innlent Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent Bíll valt eftir aftanákeyrslu Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Erlent Fleiri fréttir Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Enn annað innbrot í Laugardalnum Ráðherra um árásir, lögblindur sjúkraþjálfari og álftarungar á hóteli Hvalfjarðargöng eru lokuð Bíll valt eftir aftanákeyrslu Símasambands- og netlaust fyrir austan Metfjöldi með doktorspróf úr HR „Við lifum ekki á friðartímum“ Krísa í Kattholti: Fólk losar sig við ketti á sumrin Íranir án bandamanna, svimandi hátt verðlag og krísa í Kattholti Sögulega lítið fylgi Framsóknar, veiðigjöld og Íran Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Tveir handteknir grunaðir um eignaspjöll Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com „Glæpsamlegar árásir,“ gæludýr í fjölbýli og gleði með Messi Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sjá meira
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent