Innlent

44 þúsund tonnum landað

Tæplega 44 þúsund tonnum af síld úr norsk íslenska síldarstofninum hefur verið landað það sem af er vertíðinni. Þar af hafa íslensk skip landað tæplega 38 þúsund tonnum og erlend skip um sex þúsund tonnum. Heildarkvóti ársins 2004 er ríflega 128 þúsund tonn og á því eftir að veiða um 90 þúsund tonn af útgefnum kvóta. Mestu hefur verið landað hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað, eða 9.600 tonnum, og þar á eftir kemur Hraðfrystihús Þórshafnar með 8.600 tonn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×