Innlent

Forsetahjónin á Ísafirði

Forsetahjónin, Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff, fóru til Ísafjarðar í morgun. Frú Dorrit er sérstakur heiðursgestur og verndari Siglingadaga sem settir verða í dag og forsetinn verður viðstaddur ráðstefnuna „Með höfuðið hátt“ sem sett var í gærkvöldi. Þetta kemur fram á vef Bæjarins besta í dag. Meðfylgjandi mynd er úr myndasafni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×