Innlent

Banaslys á Bíldudal

Banaslys varð á Bíldudal á sjöunda tímanum í gærkvöld. Ekið var á 14 stúlku á veginum rétt fyrir utan bæinn og er talið að hún hafi látist samstundis. Stúlkan var þar á gangi með 6 ára gamalli telpu sem sakaði ekki. Lögreglan á Patreksfirði rannsakar tildrög slyssins. Nokkrir farþegar voru í bifreiðinni og er búist við að þeir geti gefið upplýsingar um hvað varð til þess að stúlkan varð fyrir bifreiðinni. Ekki er unnt að greina frá nafni stúlkunnar að svo stöddu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×