Innlent

Jarðskjálftahrina enn í gangi

Jarðskjálftahrinan á Reykjanesskaga, sem hófst síðastliðinn sunnudagseftirmiðdag er enn í gangi. Upptök skjálftanna mælast norðan við Ísólfsskála á svæði sem nær frá Festarfjalli í suðri og norður í Fagradalsfjall og er um 8-10 km austnorðaustan af Grindavík. Virknin hófst vestast á þessu svæði, en hefur síðan færst til norðausturs í átt að Kistufelli. Virknin hefur heldur verið að aukast, í gær mældust á milli 200 og 300 skjálftar á svæðinu og yfir 200 skjálftar hafa mælst það sem af er deginum í dag. Stærsti skjálftinn varð um kl. 21:20 í gærkvöldi, og mældist hann 2,7. Langflestir skjálftanna eru smáir, aðeins um 10 skjálftar hafa mælst af stærð um og yfir 2 og hafa þeir flestir orðið í dag. Áfram verður fylgst með virkninni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×