Innlent

Fannst á siglingu

Slysavarnafélagið Landsbjörg, björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út á þriðja tímanum í gær vegna báts sem dottið hafði út úr sjálfvirku tilkynningarskyldunni. Þegar báturinn datt út var hann staddur skammt norðvestur af Snæfellsnesi og ekki náðist við hann samband. Báturinn fannst upp úr klukkan fjögur og var þá á siglingu skammt frá þeim stað sem síðast hafði spurst til hans. Ekkert virtist ama að. Ekki er vitað hvers vegna báturinn datt út úr tilkynningarskyldunni en talið er að bilanir hafi orðið um borð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×