Innlent

Skortur á matvælum

Mikið álag hefur verið á starfsemi Fjölskylduhjálparinnar undanfarna daga þar sem hún er eina félagið sem nú hjálpar efnalitlum fjölskyldum. Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálparinnar, segir ástandið frekar slæmt núna þar sem önnur félög eða samtök sem leggi bágstöddum lið séu með lokað þar til í ágúst eða september. Hún segir hundruð fjölskyldna þurfa á hjálp að halda og álagið hafi verið mikið undanfarið. Nú sé svo komið að það skorti matvæli fyrir fólk sem leiti til Fjölskylduhjálparinnar. Hún segir þá sem vilji leggja Fjölskylduhjálpinni lið geta komið með matvæli á skrifstofu félagsins við Eskihlíð á þriðjudögum milli klukkan 13 og 17.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×