Innlent

Albatros á áætlun

Skemmtiferðaskipið Albatros er komið aftur til landsins á áætlun. Skipið varð fyrir neðarsjávarskemmd í síðustu ferð og gistu farþegarnir í Reykjavík tveimur dögum lengur en áætlað var meðan íslenskir verktakar gerðu við skipið í Straumsvík. Ólafía Sveinsdóttir, deildarstjóri skipadeildar Atlantik, segir um sjö hundruð farþega um borð. "Skipið verður á Akureyri á morgun og fer þaðan til Svalbarða. Síðan ferð það til Nordkapp í Noregi og siglir loks niður með norsku fjörðunum til Þýskalands."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×