Grjóthnullungum rigndi 3. júlí 2004 00:01
Grjóthnullungum rigndi yfir Borgartún og í hús Ríkiskaupa um klukkan þrjú í gærdag. Fjórar rúður brotnuðu og lenti grót á litlum fólksbíl sem lagt var í götunni og beyglaðist. Grjót, allt að tíu sentimetrar í þvermál, þeyttust allt að sjötíu metra og lágu á götunni. Menn frá Jarðvélum voru að sprengja fyrir tveggja hæða djúpum bílakjallarara sem á að standa undir nýju fjögurra hæða húsi á móti Ríkiskaupum, Borgartúni 7. Mikil mildi var að enginn átti leið um götuna þegar sprengingin varð. Óskar Borg var við störf í byggingu Ríkiskaupa þegar sprengingin varð. Honum varð óneitanlega brugðið. "Það komu skruðningar og ég heyrði brothljóð en það var miklu meiri hvellur og dynkur. Ég var hérna hinum megin í húsinu og ég tók strax eftir því að þetta var ekki eins og það átti að vera." Óskar segir engan hafa verið að vinna þeim megin í húsinu sem snýr að götunni. Hann segir ekki miklar skemmdir vera innanhúss en einn steinn hafi sloppið í gegn og inn á skrifstofu sem var mannlaus. Óskar átti bílinn fyrir framan bygginguna og segir að hann hefði lagt honum annars staðar hefði hann vitað af sprengingunum. Bjarni Kristjánsson sprengjustjóri segir alltaf hættu á að svona fari. Helst sé því kosið að sprengja á kvöldin eða um helgar. Þetta hafi gerst þar sem yfirbreiðsla yfir holurnar sjö sem geymdu um 20-30 kíló af dínamíti hafi ekki hulið svæðið nægilega vel. Tjónið sé ekki mikið og fyrirtækið tryggt fyrir því. Ráðstafanir verði gerðar svo þetta komi ekki fyrir aftur. "Við fáum betri yfirbreiðslur og tökum minna í einu svo það sé öruggt að það geti hvergi sloppið steinn." Pétur Guðmundsson, aðalvarðstjóri Lögreglunnar í Reykjavík, segir framkvæmdir hafa verið stoppaðar á meðan vettvangsrannsókn rannsóknardeildarinnar stóð yfir. Hún hafi skoðað hvað hafi misfarist.
Fréttir Innlent Mest lesið Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Erlent Flaug í einkaflugi með Støre Innlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Innlent Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Kona féll í Svöðufoss Innlent Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Erlent Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Innlent Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Innlent Fleiri fréttir Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Hyggst setja RÚV „talsverðar skorður“ í þágu einkarekinna fjölmiðla Handtekinn fyrir að sveifla hamri Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Sjá meira