Innlent

Röng sök

Börn færeyskra hjóna sem komu hingað til lands árið 2000 og voru tekin af foreldrum sínum viðurkenna að hafa borið móður sína og stjúpföður rangri sök. Þau sögðust hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi sem í raun var líkamlegt ofbeldi. Hjónin sem eiga eitt barn saman og hvor sín þrjú misstu forræði yfir börnunum hér á landi. Fyrrverandi makar þeirra hjóna höfðu tekið saman og umgengust þau því börnin. Að áeggjan fósturmóður barnanna báru þau fósturföður sinn rangri sök. Hjónin hlutu tveggja ára dóm hér á landi. Ekki er ólíklegt að börnin fái dóm fyrir sakirnar í Danmörku sem og stjúpmóðirin. Þau eru öll búsett hérlendis. Öll börnin eru í fóstri nema það elsta, samkvæmt fréttum Ríkisútvarpsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×