Grjótregn í Reykjavík 3. júlí 2004 00:01
Skæðadrífa grjóthnullunga kastaðist yfir húsið við Borgartún 7, þar sem m.a. Ríkiskaup og Vegagerðin eru til húsa, þegar sprengt var fyrir grunni í götunni. Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem starfsmenn ríkis og borgar fá grjóthnullunga úr grunninum inn á borð til sín. Sprengistjórinn segir þetta mistök. Fyrir um tveimur vikum átti byggingafulltrúi Reykjavíkurborgar fótum fjör að launa þegar sama fyrirtækið, Jarðvélar, var að sprengja fyrir grunninum á lóðinni við Borgartún. Þá kastaðist grjót inn um glugga á skrifstofum skipulags og byggingarsviðs borgarinnar sem eru við Borgartún 5 . Í þetta skipti var krafturinn svo mikill að grjótið kastaðist yfir 100 metra - úr grunninum og yfir götuna - og náði að dælda bifreið og mölva sjö rúður í húsinu við Borgartún 7. Engin slys urðu á fólki en þó nokkrir voru í byggingunni þegar sprengingin varð. Óskar Borg, markaðsstjóri Ríkiskaupa, var þar á meðal og segir hann húsið hafa nötrað og hávær brothljóð borist honum til eyrna. Þegar hann fór að athuga hvað væri á seyði mætti honum hrúga af grjóti í anddyri byggingarinnar. Bjarni Kristjánsson, sprengistjóri hjá Jarðvélum, segir aðspurður hvorki um óheppni né klaufaskap að ræða heldur ranga útreikninga. Klöppin, sem um sé að ræða, sé líka „erfið“. Bjarni segir að 20 til 25 kíló af sprengiefni hafi verið sprengd þegar motturnar gáfu sig og grjótið tókst á flug. Í fyrra skiptið var málið sent til athugunar hjá yfirverkfræðingi og byggingafulltrúi átaldi fyrirtækið fyrir að hafa ekki lokað umferð um götuna áður en hafist var handa við að sprengja. Sprengistjórinn segir þá bíða eftir því að öll umferð - gangandi og akandi - fari af götunni áður en sprengt er. Svo hafi einnig verið í þessu tilviki. Þess má geta að framkvæmdir við grunninn eru á byrjunarstigi og fyrir er heilmikil klöpp sem enn á eftir að sprengja burt.
Fréttir Innlent Mest lesið Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Erlent Tölvuárás á Grund: Afrituðu gögn um tugi þúsunda manns Innlent „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Innlent Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Innlent Ný samræmd próf lögð fyrir Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Erlent Kjartan er kominn heim til Íslands Innlent WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Innlent Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri Erlent Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Erlent Fleiri fréttir Tölvuárás á Grund: Afrituðu gögn um tugi þúsunda manns Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Ný samræmd próf lögð fyrir Framsókn þurfi að þora að svara rangfærslum og hálfsannleik popúlista „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Kjartan er kominn heim til Íslands Aldrei fleiri útskrifast frá Bifröst Gagnrýnir hversu seint og illa endurreisn Grindavíkur gengur Íslendingar stemmningsfólk sem taki öllum gleðidögum fagnandi Bein útsending: Sigurður Ingi ávarpar Framsóknarmenn í síðasta sinn sem formaður Segir einkaðila ekki hafa fengið svör í marga mánuði Ánægja með bæjarstjórann en Sjálfstæðismenn með mest fylgi Uppnám á bráðamóttökunni og seinagangur í Grindavík Fluttur á sjúkrahús eftir líkamsárás í Grafarvogi WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Herþotur frá Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi á Íslandi Tveir handteknir fyrir stórfellda líkamsárás og vörslu fíkniefna Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Algjör samstaða sé um að hækka bætur Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Vildi fá hestinn endurgreiddan þar sem hann var með aukatönn Viðræður við Klíníkina, barátta stórvelda og Breiðholt Got Talent Óðinn Svan leiðir L-listann Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Tveir veiðimenn fengu tvær milljónir frá Hval Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi Sjá meira