Innlent

Vill rannsókn á kynferðisbrotum

Berglind Stefánsdóttir, formaður Félags heyrnarlausra, vill að fram fari opinber rannsókn á hversu stór hópur heyrnarlausra barna hafi verið misnotaður kynferðislega. Heyrnarlaus maður á fertugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag dæmdur í tveggja ára fangelsi, þar af 21 mánuð skilorðsbundið til fimm ára, fyrir kynferðisbrot gegn tveimur dætra sinna. Dómararnir sögðust vilja "kasta bjarghring" til hans með því að ákvarða honum refsingu sem væri að stærstum hluta skilorðsbundin. Sérstakt tillit var tekið til erfiðra aðstæðna hins dæmda en hann segist hafa mátt sæta daglegri kynferðislegri misnotkun frá níu til sautján ára aldurs er hann bjó á heimavist Vesturhlíðarskóla. Einnig segir í dómnum að svo virðist vera sem nokkuð margir heyrnarlausir einstaklingar sem sóttu skólann hafi orðið fyrir kynferðislegri misnotkun. Berglind segir rökstuddan grun um kynferðisbrot gegn heyrnarlausum börnum hér á landi. "Þetta er stór hópur sem um er að ræða en ég hef þó engar tölur" segir Berglind. Engin rannsókn hefur farið fram hérlendis á málinu en rannsóknir í Noregi hafi sýnt að fjórða hvert heyrnarlaust barn hafi verið misnotað. Berglind telur því nauðsynlegt að rannsókn fari fram. "Það eru margir sem búa yfir þessari reynslu og því mjög mikilvægt að málið verði skoðað."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×