Innlent

Sextán hrefnur hafa veiðst

Sextán hrefnur hafa veiðst síðan hrefnuveiðar í vísindaskyni voru hafnar á ný í síðasta mánuði, samkvæmt upplýsingum frá Hafrannsóknastofnuninni. Ekki er enn vitað hvenær veiðunum lýkur en heimilað hefur verið að veiða 25 dýr á árinu. Veiðarnar munu hafa gengið hægt í síðustu viku vegna óhagstæðs veðurs á miðunum. Lítið hafi því bæst við af veiddum dýrum. Vonir standa þó til að betur gangi í næstu viku enda spáð skánandi veðri.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×