McGrady og Francis skipta um félög 30. júní 2004 00:01
NBA-liðin Orlando Magic og Houston Rockets komu sér saman í gær um að skiptast á aðalstjörnum sínum, Tracy McGrady fer frá Orlando til Houston sem í staðinn fá Steve Francis. Auk þeirra fór framherjinn Juwan Howard og bakverðirnir Tyronn Lue og Reece Gaines til Rockets en á móti kom bakvörðurinn Cuttino Mobley og framherjinn Kelvin Cato með Francis til Magic. McGrady hefur tvisvar verið stigahæsti leikmaður NBA-deildarinnar og var með meðaltal upp á 28,0 stig, 6,0 fráköst og 5,5 stoðsendingar á síðasta tímabili. Mikil spenna er að sjá hvernig hann og Kínverjinn Yao Ming ná saman. Ming er 2,26 metrar á hæð en mjög hreyfanlegur og mjúkur miðherji þrátt fyrir alla þessa sentimetra. Margir hafa spáð fyrir svipaðri velgengni hjá þessum tveim í framtíðinni og hjá þeim Shaquille O´Neal og Kobe Bryant hjá LA Lakers á síðustu árum enda líkt og þeir tveir frábærir og illstöðvanlegir leikmenn á ferðinni. McGrady komi til Orlando fyrir fjórum árum og ætlaði þá að mynda annað gott tvíeyki með Grant Hill en Hill hefur síðan aðeins spilað 37 leiki vegna meiðsla og McGrady var með allt liðið á herðum sér þann tíma sem hann spilaði á Flórídaskaganum en hann er einmitt ættaður þaðan. Það var því vilji McGrady að fara frá Magic, sem var með slakasta árangurinn á síðasta ári, og Orlando vildi ekki eiga hættu á að missa hann fyrir ekki neitt þar sem hann átti aðeins eitt ár eftir af samningnum sínum. McGrady, sem er 25 ára, er fjórði stigakóngurinn í sögu NBA-deildarinnar sem skiptir um lið en það hafði ekkert gerst í 28 ár eða síðan 1976. Francis hefur þrívegis verið valinn í Stjörnuleikinn en hann var með 16,6 stig, 5,5 fráköst og 6,2 stoðsendingar að meðaltali með Houston á síðasta tímabili og slóst þar með í hóp með þeim Oscar Robertson, Magic Johnson og Grant Hill sem eru einu leikmennirnir í sögu NBA sem ná að skora 15 stig, taka fimm fráköst og gefa fimm stoðsendingar að meðaltali öll fyrstu fimm árin sín í deildinni.
Íþróttir Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik - Stjarnan | Ná Blikar að halda toppsætinu? Fótbolti Fleiri fréttir Russell byrjar á ráspól í Barcelona Leik lokið: Fram-Grindavík/Njarðvík 0-2 | Nýliðarnir upp í sjötta sæti Valur - Þór/KA | Harður slagur á botni deildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Stemningin á Times Square engri lík Breiðablik - Stjarnan | Ná Blikar að halda toppsætinu? Þróttur R. - ÍBV | Risaslagur um þriðja sæti deildarinnar Víkingur - FH | Heldur FH sigurgöngunni áfram? Stórsigur í Stokkhómsslagnum Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Verður ekki með í fyrsta leik á HM Æfingatækjum stolið af enska landsliðinu Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli „Hundgamall“ klefafélagi Tómasar spilar á HM Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Dagskráin: Besta kvenna aftur af stað með risadegi Páfinn gerður að heiðursfélaga hjá Real Madrid Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Segir að franska liðið sé betra en það sem vann HM 2018 Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Lærisveinar Heimis missa heimaleik á hlutlausan völl Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Heimamenn í Kanada björguðu stigi í lokin Sjá meira