Sport

Gerrard lét hjartað ráða

Liverpool hélt blaðamannafund í dag þar sem því var lýst yfir að Steven Gerrard myndi ekki yfirgefa herbúðir félagsins en hann hefur verið sterklega orðaður við Chelsea síðustu daga. Hann játaði þó að hafa íhugað að yfirgefa félagið. Þessar fréttir eru klárlega mikill léttir fyrir stuðningsmenn félagsins enda Gerrard af flestum talinn besti leikmaður félagsins enda hélt hann liðinu á floti á síðustu leiktíð. Þar að auki hefði Liverpool væntanlega misst Michael Owen líka ef Gerrard hefði farið til Chelsea. "Steven Gerrard vill koma því á framfæri að allar fréttir þess eðlis að hann sé á leið frá félaginu eiga ekki við rök að styðjast og hann mun leika áfram með Liverpool næsta vetur," segir í yfirlýsingu sem Liverpool gaf frá sér á blaðamannafundinum í dag. "Síðustu þrjár til fjórar vikur hafa verið mjög ruglingslegar og í fyrsta skipti á ferlinum íhugaði ég að yfirgefa Liverpool," sagði Gerrard. "En ég lét hjartað ráða og það sagði mér að vera áfram hjá Liverpool." "Við vitum að það er óvenjulegt að boða til blaðamannafundar til að greina frá slíku en þegar leikmaðurinn er Steven Gerrard þá hljóta menn að skilja af hverju," sagði Rick Parry, yfirmaður knattspyrnumála hjá Liverpool.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×