Neyðarúrræði Háskóla Íslands 27. júní 2004 00:01
Formaður stúdentaráðs telur að ákvörðun Háskóla Íslands um að nýta ekki undanþáguheimild í lögum og hleypa um 200 nemendum með starfsreynslu á við stúdentspróf inn í skólann sé neyðarúrræði. Framkvæmdastjóri akademískrar stjórnsýslu við Háskólann segir skólann ekki í deilu við menntamálaráðuneytið. Jarþrúður Ásmundsdóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, segir Háskólann þvingaðan til aðgerða. "Við höfum fylgst með þessu og fengið til okkar fyrirspurnir og reynt að skoða þessi mál og greiða leiðir þessa fólks. Við höfum átt samskipti við Háskólayfirvöld og það er alveg ljóst að deildarforsetar eru tilbúnir að hleypa þessu fólki inn. Aftur á móti er málið þannig að Háskóli Íslands er neyddur til að taka til mjög harðar aðgerða. Það er búið er að mála Háskólann út í horn og því er staðan svona. Háskólinn getur því miður ekki veitt þessu fólki inngöngu og nýtt sér þær undanþágur sem reglurnar kveða á um." Þórður Kristinsson, framkvæmdastjóri akademískrar stjórnsýslu Háskóla Íslands, segir Háskólann í góðu samstarfi við menntamálaráðuneytið. "Hins vegar var tekin sérstök ákvörðun um að nýta ekki þessa heimild sem við höfum að taka inn fólk sem ekki uppfyllir formleg inntökuskilyrði." Jarþrúður hefur heyrt um fólk sem hafi dregið að borga skólagjöld við Háskólann og því ekki fengið skólavist. "Aftur á móti tel ég að þeir sem eru komnir langt í námi og hafa skilað viðunandi árangri áður fyrr hafi fengið undanþágu og ég veit að hvert tilfelli er skoðað sérstaklega." Þórður staðfestir að farið sé yfir allar umsóknir. "Það var sérstaklega tekið á þessu að það yrðu ekki neinar undanþágur frá þessum fresti. Það var sérstaklega kynnt í lok desember. Farið er eftir þeim samþykktum sem Háskólaráð hefur ákveðið." Jarþrúður telur þetta segja okkur hvað ástandið sé skelfilegt. "Við viljum sjá menntamálaráðherra og menntamálaráðuneyti greiða götu Háskóla Íslands og sjá til þess að þessir hlutir verði leiðréttir rétt eins og þeir gerðu í máli framhaldskólanna."
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira