Innlent

Kalla þarf saman Alþingi hið fyrsta

Hannes Smárason, eigandi Prímusar og stjórnarformaður Flugleiða
Hannes Smárason, eigandi Prímusar og stjórnarformaður Flugleiða
Þingflokkar Samfylkingar og Vinstri grænna telja nauðsynlegt að Alþingi verði kallað saman sem fyrst svo taka megi ákvörðun um fyrirkomulag og tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Flokkarnir telja jafnframt að nánar samvinnu allra þingflokka sé þörf. Þingflokkarnir sendu frá sér yfirlýsingar um ákvörðun forseta Íslands um synjun á staðfestingu fjölmiðlalaga í gær. Fram kom í yfirlýsingu Samfylkingarinnar að þingflokkurinn teldi að sú ákvörðun forseta Íslands að vísa fjölmiðlalögum ríkisstjórnarinnar í þjóðaratkvæði treysti lýðræðið og styrkti rétt hins almenna borgara gagnvart framkvæmdavaldinu. Vinstri grænir sögðu að virða virða beri ákvörðun forsetans, og um leið rétt þjóðarinnar, vafningalaust. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði að svo að þjóðaratkvæðagreiðsla geti farið fram þurfi Alþingi að samþykkja lög um framkvæmd kosninganna og síðast en ekki síst um hvenær kosningin á að vera, en mesta óvissan ríki um það. "Sömuleiðis höfum við óskað eftir náinni samvinnu og samráði við aðra þingflokka á Alþingi um þetta mál. Þjóðaratkvæðagreiðslan er í eðli sínu óflokkspólitísk, stjórnmálaflokkarnir eiga að stíga til hliðar og leyfa þjóðinni að ráða niðurstöðunni. Til þess að það sé hægt þarf þingið að setja leikreglur sem ekki eru fyrir hendi og málið er þess eðlis að það kallar á sem mesta samvinnu og slíkt samráð tryggir líka breiða samstöðu um niðurstöðuna, hver sem hún verður. Það kemur í veg fyrir ágreining um framhaldið," sagði Össur. "Mér finnst það hins vegar góðs viti að í yfirlýsingu frá forustumönnum Framsóknarflokksins kom skýrt fram að af þeirra hálfu ríkir enginn efi um þennan rétt forsetans. Formaður flokksins hefur talað um nauðsyn þess að þjóðaratkvæðagreiðslan færi fram eins fljótt og kostur væri til þess að stjórnarskránni yrði hlýtt. Því á ekki von á öðru en að það takist gott samráð," sagði Össur. Í ályktuninni segir einnig að Samfylkingin telji að nauðsynlegur þáttur í lýðræðisþróun Íslendinga sé að skapa farveg þar sem tiltekinn fjöldi landsmanna eða ákveðið hlutfall alþingismanna getur óskað eftir þjóðaratkvæðagreiðslu.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×