Innlent

Ungi fanginn vill á geðdeild

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á miðvikudaginn Andra Má Gunnarsson, 19 ára dreng, í eins árs fangelsisvist á Litla Hrauni. Dómurinn stimplaði Andra sem síbrotamann. Í viðtali við DV segist Andri eiga heima í heilbrigðiskerfinu en ekki fangelsi. Hrina fjársvika, skjalafalsa, þjófnaða og peningaþvættis varð þessum 19 ára dreng, sem er einn yngsti fanginn á Litla Hrauni, að falli. Andri á við geðræna erfiðleika að stríða og segist frekar eiga heima í heilbrigðiskerfinu en á Hrauninu. Hann gengur undir nafninu unglambið í fangelsi, ekki síst vegna ungs aldurs og þess að hann er nýbyrjaður að fremja glæpi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×