Meðferð á Torfastöðum í lagi 15. október 2004 00:01
Meðferð sem veitt var á Meðferðarheimilinu á Torfastöðum var í viðunandi samræmi við samning heimilisins við ríkið, samkvæmt úttekt Ríkisendurskoðunar. Hún telur að meðferðarheimilið gæti átt rétt á uppbótargreiðslu frá ríkinu. Meðferðarheimilið á Torfastöðum hefur um árabil tekið ungt fólk sem á við áfengis- og vímuefnavanda að stríða í meðferð. Þau sögðu upp samningi sínum við ríkið fyrr á þessu ári, að sögn, vegna óvildar forstöðumanns Barnaverndarstofu í garð heimilisins. Félagsmálaráðuneytið fól Ríkisendurskoðun í sumar að gera úttekt á starfsemi heimilisins. Skýrsla Ríkisendurskoðanda er tilbúin og verður hún kynnt síðar í dag. Í henni kemur meðal annars fram að sú meðferðarþjónusta sem heimilinu var ætlað að veita á samningstímanum hafi verið í viðunandi samræmi við samninginn sem í gildi var á milli heimilisins og ríkisins. Torfastaðir hafi þegar á heildina er litið veitt sambærilega eða jafngilda þjónustu og meðferðarheimilin á Geldingalæk og Laugalandi. Í skýrslunni kemur fram að athugasemdir Barnaverndarstofu við eitt og annað í framkvæmd samningsins af hálfu heimilisins, svo sem um skort á kennara, skýrsluskil, áfengisneyslu og fleira, geti ekki breytt þessari meginniðurstöðu. Í skýrslunni kemur ennfremur fram að kostnaður Barnaverndarstofu á árunum 2000 til 2003 vegna samningsins um rekstur meðferðarheimilisins á Torfastöðum var að meðaltali um þremur og hálfri milljón króna lægri á ári en vegna meðferðarheimilisins að Geldingalæk og Laugalandi, og er þá ekki tekið tillit til þess að greiðslum til Torfastaða var ætlað að standa undir skólakostnaði, sem greiðslum til hinna heimilanna var ekki ætlað að gera. Skýrsla Ríkisendurskoðanda kemst að þeirri niðurstöðu að þungvæg sanngirnisrök megi færa fyrir uppbótargreiðslu til heimilisins til að bæta upp það sem skort hafi á til að endurgjald til Torfastaða geti talist sambærilegt við meðferðarheimilin á Geldingalæk og Laugalandi.
Fréttir Innlent Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Sjá meira