Skilur ekki doðann í fólki 15. október 2004 00:01
Þjóðfélagið hefði farið á annan endann eftir nokkurra daga mjólkurskort segir Andri Snær Magnason, faðir grunnskóladrengs í Reykjavík. Hann skilur ekki hvers vegna fjögurra vikna verkfall grunnskólakennara veldur ekki meira uppnámi en raun ber vitni. Að hans mati hafa grunnskólabörn nú liðið andlegan næringarskort í mánuð. Um 45 þúsund grunnskólanemendur hafa nú verið án kennslu í næstum fjórar vikur, og ljóst er að verkfallinu lýkur ekki fyrir vikulok því sáttafundur hefur ekki verið boðaður fyrr en á mánudag. Verkfall er slæmt fyrir alla, því verður ekki neitað en flestir eru þó sammála um að börnin okkar fari verst út úr þessarri kjaradeilu sem nú er í hörðum hnút. Fréttastofan hefur rætt við marga foreldra og talsmenn foreldrafélaga í dag sem kvarta yfir tómlæti almennings. Svo notuð séu orð viðmælendanna; hér væri allt vitlaust hefði verkfallið leitt af sér bensínskort. Undir þetta tekur Andri Snær Magnason sem segir engan geta firrt sig ábyrgð. Hann segir verkfallið koma öllum við og jfanvel forsetinn eigi að fjalla um málið. Ef verið sé að kenna krökkum að skóli skipti máli og það skipti máli að koma ekki 5 mínútum of seint séu skilaboðin til þeirra afar slæm. Börnin verði sljó af því að hanga heima hjá sér í mánuð. „sjónvarpsstöðvarnar ættu náttúrulega að nota tækifærið og sýna fræðluefni á morgnana, en þær gera það ekki," segir Andri. Hann segir ekkert mikilvægara en nám barnanna og hann skilur ekki hvers vegna það sjái það ekki allir. Hann segir að til að byrja með væri hægt að loka Miklubrautinni á meðan á verkfallinu stæði, enda séu menn ekkert mikilvægara að fara að gera en að hugsa um börnin. Réttast væri að deiluaðilar yrðu látnir útkljá málið matar- og vatnslausir um helgina.
Fréttir Innlent Mest lesið Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Erlent Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Erlent Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Innlent Greinir á við kjósendur sína Innlent Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Fleiri fréttir Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Sjá meira