Áframhaldandi veiðibanni mótmælt 17. september 2004 00:01
Áframhaldandi rjúpnaveiðibann gæti haft alvarleg áhrif á aðra dýrastofna, og leitt til óhóflegrar veiði, og dýrmætu veiðikortakerfi yrði stefnt í hættu. Þetta kom fram á fjölmennum fundi Skotveiðifélags Íslands um rjúpuna, sem haldinn var í Norræna húsinu í gærkvöldi. Hátt í 200 félagar Skotveiðifélags Íslands mættu á fundinn og var mikill hiti í mönnum vegna rjúpnaveiðibannsins, sem nú hefur staðið í rúmt ár. Fulltrúar allra stjórnmálaflokka sátu fundinn. Ólafur K. Níelsen, fuglafræðingur, kynnti nýja skýrslu Náttúrufræðistofnunar um stöðu rjúpnastofnsins og greindi meðal annars frá því að stofninn hefði tekið vel við sér og að fjölgað hefði í stofni eldri rjúpna. Fram kom að bannið hefði einnig haft margvísleg neikvæð áhrif. Til að mynda hefði veiði annarra dýrastofna, á borð við gæs, aukist til muna, og höfðu menn áhyggjur af því að hún gæti orðið óhófleg. Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Íslands, segir að bannið hafi einnig haft slæm áhrif á veiðikortakerfið, sem innihaldi upplýsingar um það magn sem veitt sé og hvar sé veitt, en þó nokkuð hafi borið á því að menn skili vísvitandi röngum upplýsingum, til þess að mótmæla rjúpnaveiðibanninu. Þannig hafi fjárstreymi til veiðikortasjóðs dregist saman um 30 prósent á einu ári, en fyrir féð eru stundaðar rannsóknir á villtum veiðidýrum. Sigmar segir kerfið afar dýrmætt. Sigmar segir að ef kerfið hrynji þá muni íslendingar ekki geta stundað sjálfbærar veiðar úr íslenskum dýrastofnum.Hann segir gríðarlega ósátt vera með bannið meðal veiðimanna, ekki síst vegna þess að ekkert samráð hafi verið haft við veiðimenn þegar það var ákveðið, né heldur ráðgefandi stofnanir eins og Umhverfisstofnun. Sigmar segir að til þess að ná sáttum veiðimanna séu menn tilbúnir að leggja á sig työluverðar fórnir og hefja veiðar við fyrsta tækifæri.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Sjá meira