Innlent

Tvö ný nöfn á lista ársins

Margir hafa orðið til að velta fyrir sér uppruna nafna sem fellibyljum eru gefin. Fellibylurinn Ívan, sem á upptök sín í Atlantshafi, hefur til dæmis farið mikinn síðustu daga og valdið miklu tjóni. Verði til annar í Atlantshafi á þessu ári verður næst fyrir valinu kvenmannsnafnið Jeanne, eða Jóna upp á íslenskuna. Fellibyljaspástöðin í Flórída í Bandaríkjunum heldur utan um margvíslegar upplýsingar um sögu fellibylja og lætur sér ekki nægja að spá fyrir um það. Á vef spástöðvarinnar kemur fram að langt sé síðan tekið var að nota mannanöfn til að auðkenna fellibylji, en reynslan sýndi að stutt og greinileg nöfn skiluðu sér betur í samskiptum við sæfarendur, veðurstöðvar og strandbyggðir. Áður var notast við lengdar- og breiddarbaug upprunastaðar til auðkenningar. Nöfn fellibylja í Atlantshafi eru valin úr listum sem alþjóðleg nefnd á vegum Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar viðheldur. Upprunalegu nafnalistarnir voru búnir til í Fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna árið 1953. Fram til ársins 1979 voru fellibyljir alfarið nefndir kvenmannsnöfnum, en eftir þann tíma var ákveðið að láta koma til skiptis kvenmannsnafn og karlmannsnafn. Notaðir eru sex listar, með 21 nafni hver. Þannig verður listi ársins í ár aftur í notkun árið 2010. Engu að síður er það svo að nöfn geta fallið út af listanum og kemur þá til kasta nefndarinnar að velja nýtt nafn í staðinn. Ef fellibylur reynist svo öflugur að hann valdi gífurlegri eyðileggingu og manntjóni er litið svo á að ekki sé stætt á að nota sama nafnið aftur. Með því er forðast að ýfa upp sárar minningar fólks sem hefur orðið illilega fyrir barðinu á honum. Á heimasíðu Fellibyljaeftirlits Bandaríkjanna kemur fram að nokkrar breytingar hafi verið gerðar á listunum frá því síðast. Notkun á fjórum nöfnum frá lista ársins 1995 hefur verið hætt. Þannig er á lista ársins 2001 Lorenzo kominn í staðinn fyrir Luis, Michelle komin í stað Marilyn, Olga í stað Opal og Rebekka komin í staðinn fyrir Roxönnu. Þrjú nöfn frá 1996 eru breytt þannig að á listanum 2002 hefur Cristobal komið í staðinn fyrir Cesar, Fay í stað Fran og Hanna komin í staðin fyrir Hortense. Tvö nöfn frá 1998 hafa verið aflögð þannig að Gaston kemur í stað Georgs og Matthew í stað Mitch á lista ársins í ár. Á nafnalistanum sem notaður verður árið 2006 hefur svo Kirk komið í staðinn fyrir Keith. Nöfn fellibylja í Atlantshafi: 2004         2005        2006        2007      2008        2009 Alex          Arlene     Alberto   Andrea    Arthur     Ana Bonnie      Bret         Beryl      Barry      Bertha      Bill Charley    Cindy       Chris      Chantal   Cristobal Claudette Danielle   Dennis      Debby    Dean        Dolly       Danny Earl          Emily       Ernesto   Erin          Edouard  Erika Frances    Franklin   Florence Felix         Fay          Fred Gaston     Gert         Gordon   Gabrielle Gustav    Grace Hermine   Harvey    Helene    Humberto Hanna    Henri Ivan          Irene       Isaac       Ingrid       Ike           Ida Jeanne      Jose        Joyce      Jerry       Josephine Joaquin Karl          Katrina    Kirk       Karen       Kyle         Kate Lisa          Lee          Leslie     Lorenzo   Laura       Larry Matthew   Maria      Michael   Melissa   Marco     Mindy Nicole       Nate       Nadine     Noel       Nana    Nicholas Otto        Ophelia     Oscar      Olga       Omar       Odette Paula       Philippe     Patty       Pablo      Paloma   Peter Richard    Rita           Rafael     Rebekah Rene       Rose Shary       Stan          Sandy     Sebastien Sally       Sam Tomas      Tammy     Tony       Tanya      Teddy    Teresa Virginie     Vince       Valerie     Van         Vicky   Victor Walter      Wilma      William     Wendy    Wilfred Wanda Heimild: Fellibyljaspástöðin í Flórída í Bandaríkjunum. Margir nafnalistar fellibylja eru í notkun í heiminum. Austurhluti Norður-Kyrrahafs er til dæmis með sér lista, sem og miðhlutinn og vesturhlutinn. Ástralir eru með aðskilda lista fyrir vestur-, norður- og austurhluta upprunasvæða. Fídjieyjar viðhalda sínum eigin listum og þannig er um fjölda annarra landsvæða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×