Lífið

Inneignir í lýtaaðgerð í jólagjöf

Inneignarnótur hjá lýtalæknum eru orðnar vinsæl jólagjöf í Bretlandi. Þarlendir lýtalæknar hafa vart undan eftirspurninni eftir færri hrukkum, stærri brjóstum og þrýstnari vörum fyrir jólin og hafa því brugðið á það ráð að selja gjafmildum eiginmönnum, vinum og ættmennum inneignarnótur í lýtaaðgerðir. Algengast er að inneignarnóturnar séu á verðbilinu fimmtíu til eitt þúsund sterlingspund og telja margir Bretar það ekki hátt verð fyrir fallegri og hamingjusamari maka, dóttur, son eða jafnvel góðan vin.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.