ÍÚ braut jafnréttislög 24. september 2004 00:01
Íslenska útvarpsfélagið og yfirmenn fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar brutu jafnréttislög þegar þeir ráku fjóra kvenfréttamenn fyrir rúmu ári, samkvæmt niðurstöðu Kærunefndar jafnréttismála. Konunum fjórum var sagt upp á fréttastofunni síðasta sumar og ástæðan sögð sú að hagræða þyrfti í rekstri. Engir karlmenn voru reknir af fréttastofunni. Fleiri starfsmenn fyrirtækisins fengu uppsagnarbréf á sama tíma - að sögn stjórnenda um sjötíu. Tvær kvennanna kærðu uppsögnina til kærunefndar jafnréttismála sem krafði fyrirtækið um rökstuðning. Stjórnendur þess sögðu starfsaldur hafa ráðið miklu, en ekki öllu, án þess að fleiri ástæður hefðu verið tilnefndar. Á þessum tíma störfuðu færri konur en karlar á fréttastofunni og í það minnsta þrír karlmenn með lægri starfsaldur héldu störfum sínum. Þótti kærunefndinni að kærða hefði ekki tekist á málefnalegan hátt að sýna fram á að aðrar ástæður en kynferði hefði legið til grundvallar uppsögnunum. Hulda Gunnarsdóttir, önnur fréttakonan sem kærði uppsagnirnar, er ánægð með niðurstöðuna. Hún segist hafa talið sig órétti beitta og nú hafi það verið staðfest. Hulda segir að það muni koma í ljós, eftir að hún hafi ráðfært sig við lögmann sinn, hvort hún fari lengra með málið og þá sækjast eftir skaðabótum. Kærunefnd jafnréttismála segir í úrskurði sínum að síðan hafi nýir fréttamenn verið ráðnir á fréttastofuna, þar af nokkrar konur og nýr fréttastjóri, sem jafnframt er kona. Það þykir þó ekki réttlæta hvernig gengið var fram þegar konunum fjórum var sagt upp. Hægt er að hlusta á viðtal við Huldu Gunnarsdóttur með því að smella á hlekkinn hér að neðan.
Fréttir Innlent Mest lesið Strandveiðisjómaður lést Innlent Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Tugir missa vinnuna í sumar Innlent „Þetta er ekkert líf“ Innlent Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Innlent Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Innlent Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Innlent Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Innlent Ráðist á rútubílstjóra og vegfarendur yfirbuguðu árásarmanninn Innlent Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Innlent Fleiri fréttir Foreldrar fjölbura fá lengra fæðingarorlof Læknanemar látnir borga hagræðingarbrúsann Náðu með markaðsátaki að lokka til sín fleiri smærri leiðangursskip Skipt um lás hjá Sósíalistaflokknum Nemendur greiði tuttugu þúsund krónum meira í Strætó en starfsfólk Sanna og Gunnar Smári höfðu betur á æsingarfundi Annað útkall vegna strandveiðibáts úti fyrir Patreksfirði „Þetta er ekkert líf“ Umræða um veiðigjöldin orðin sú þriðja lengsta Óprúttinn aðili rispaði tíu bíla á Seltjarnarnesi Fylkingarnar safna liði og ásakanir ganga á víxl: Stefnir í átök í Bolholti Líf í biðstöðu og hitafundur sósíalista Strandveiðisjómaður lést Deila um Suðurnesjalínu 2 fer beint í Hæstarétt Áslaug Arna farin í frí en enginn tekinn við Sviptur prófinu eftir að hafa ekið á 185 Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Sá sem réðst á Ingunni áfrýjar til hæstaréttar Bein útsending: Rektorsskipti í Háskóla Íslands Snurða hljóp á þráðinn í nótt Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði Reynt að ná saman um þinglok og hart deilt um Vorstjörnuna Máttu ekki eyða gögnum fyrr en málum væri lokið á öllum dómstigum Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Skoða ekki hvort maður hafi mátt binda barn niður og kitla Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Skjálfti upp á þrjá í Kötlu Fundar með þingflokksformönnum Sjá meira