Innlent

Herþoturnar mikilvægar

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra og einn helsti talsmaður Sjálfstæðisflokksins í utanríkismálum, segir að pólitískt gildi varnarbúnaðar, eins og orrustuþotna, skipti verulegu máli við öryggisgæslu. Björn segir að það sé veikur þáttur í röksemdafærslu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttir að hún minnist í raun ekkert á varnar- og öryggishagsmuni þjóðarinnar. "Telur hún Íslendinga ekki þurfa að gæta þessara hagsmuna eins og aðrar þjóðir?" Björn segist vera þeirrar skoðunar að Íslendingar eigi að taka aukinn þátt í vörnum landsins og meðal annars þess vegna hafi hann lagt til að sérsveit lögreglunnar sé efld auk þess sem lögð sé rækt við varnarsamstarfið við Bandaríkin og hugað að nánu samstarfi við nágrannaþjóðir okkar austan Atlantshafs.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×