Getur ekki fjallað um málið 19. ágúst 2004 00:01
Siðanefnd Háskóla Íslands getur ekki tekið til umfjöllunar mál aðstandenda Halldórs Laxness vegna bókar Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um skáldið. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í morgun lögbann á hendur siðanefndarinnar vegna málsins. Þetta þýðir þó ekki að málaferlum vegna bókarinnar sé lokið. Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað að siðanefnd Háskólans geti ekki tekið til umfjöllunar mál gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni vegna ævisögu hans um Halldór Laxness. Siðanefnd Háskólans getur áfrýjað þessum úrskurði en Gestur Jónsson, lögmaður nefndarinnar í málinu, segir ákvörðun um það ekki liggja fyrir. Sjálfstætt mál verður næst rekið fyrir dómstólum sem er svokallað staðfestingarmál lögbannsins. Það verður sameinað málinu sem Hannes Hólmsteinn hefur höfðað gegn erfingjum Halldórs Laxness annars vegar, og siðanefndinni hins vegar, og tekið verður fyrir í september. Málaferlum vegna hinnar umdeildu bókar Hannesar um Nóbelsskáldið er því engan veginn lokið. Hannes var sakaður um grófan ritstuld, um að hafa gert orð skáldsins að sínum og að vitna ekki í fræðimenn sem hann studdist við. Þessu hefur Hannes alla tíð neitað. Siðanefnd Háskólans hafði ætlað að fjalla um kæru aðstandenda Halldórs Laxness á hendur Hannesi sem er prófessor við Háskóla Íslands. Dómari telur fram kominn verulegan vafa um það hvort siðanefnd Háskóla Íslands hafi nægilega stoð í lögum og sé af þeirri ástæðu heimilt að fara með málið yfirhöfuð. Í það minnsta væri það ekki sanngjarnt gagnvart Hannesi að nefndin, sem hefur óvissa lagalega stöðu, úrskurði um mál sem eftir á að reka fyrir dómstólum. Hannes Hólmsteinn er í Bandaríkjunum og var ekki viðstaddur þegar úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur var kveðinn upp í morgun. Aðspurður hvað úrskurðurinn þýði í reynd segir Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður Hannesar, að ef dómstólar komist að þeirri niðurstöðu að siðanefndin megi fjalla um málið, þá muni hún gera það, en ef þeir komist að þeirri niðurstöðu að hún megi það ekki, þá sé málið úr sögunni fyrir nefndinni. Spurður hvers vegna Hannes vilji ekki að nefndin fjalli um málið segir Jón Steinar að Hannes sé tortrygginn á málsmeðferð hennar vegna ákveðinnar andúðar sem hann telur að sé gegn sér innan háskólasamfélagsins. Sú andúð stafi af afskiptum hans af stjórnmálum og þátttöku Hannesar í þjóðmálaumræðu í gegnum tíðina. Hann treysti „þessu kerfi“ því illa og vilji þ.a.l. ekki eiga neitt undir því. Hannes Hólmsteinn telur að ef menn eigi eitthvað sökótt við hann vegna ritun ævisögu Halldórs Laxness, þá sé það hlutverk íslenskra dómstóla að fjalla um það að sögn Jóns Steinars. Hann var ekki búinn að lesa dómsorðið þegar rætt var við hann. Hægt er að hlusta á viðtal við Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmann Hannesar Hólmsteins, úr hádegisfréttum Bylgjunnar með því að smella á hlekkinn hér að neðan.
Fréttir Innlent Mest lesið Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen Innlent „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Innlent Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Innlent Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Innlent Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Erlent „Raunhæfur möguleiki“ að hitamet falli á morgun Veður „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Innlent Maðurinn sem var stunginn í Mjóddinni liggur enn þungt haldinn Innlent Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Fleiri fréttir Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Leita logandi ljósi af nýju svæði undir kirkjugarð á Selfossi Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Barátta við illvígan sjúkdóm, furðuleg uppátæki fanga og svakalegar hitatölur Maðurinn sem var stunginn í Mjóddinni liggur enn þungt haldinn Gámurinn á bak og burt Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Sjá meira