Slógust við áhorfendur 20. nóvember 2004 00:01
Ron Artest, Stephen Jackson og Jermaine O´Neal, leikmenn Indiana Pacers í NBA-deildinni í körfuknattleik, slógust við stuðningsmenn Detroit Pistons á lokamínútu leiks Indiana og Detroit í gærkvöld en leikurinn fór fram í Auburn Hills, heimavelli meistara Detroit Pistons. Ron Artest braut á Ben Wallace þegar 45 sekúndur voru eftir af leiknum. Wallace brást ókvæða við og réðist að Artest. Hófust þá stympingar á milli leikmanna á vellinum. Svo virtist sem tekist hefði að róa leikmenn þegar áhorfandi Detroit kastaði vökva úr glasi sínu yfir Artest sem lá á ritaraborðinu. Artest gerði sér þá lítið fyrir og hljóp upp í áhorfendastæðin og réðist að áhorfandanum og sló hann. Þá varð allt endanlega vitlaust, Stephen Jackson skarst í leikinn og fleiri stuðningsmenn Detroit Pistons. Þegar leikmenn Indiana voru að ganga af velli gekk áhorfandi ögrandi að Ron Artest sem svaraði með höggum. Jermaine O´Neal, félagi Artest í Indiana, gerði gott betur og gaf áhorfandum þungt hnefahögg. Þegar Artest, O´Neal og Jackson gengu loksins inn í búningsklefa hentu áhorfendur í þá ís, bjór og poppkorni. Þetta er versta uppákoma í sögu NBA-deildarinnar og mikill smánarblettur fyrir hana. Forráðamenn deildarinnar hafa ekki gefið frá sér yfirlýsingu um málið en búast má við því að Detroit fái háar fjársektir og heimaleikjabann. Ron Artest, Stephen Jackson og Jermaine O´Neal leika örugglega ekki körfubolta á næstunni. Þeir verða settir í langt keppnisbann og gætu átt yfir höfði sér ákæru frá lögreglu fyrir líkamsárás og þá hugsanlega fangelsisvist. Sýndar verða myndir af þessum ótrúlegu slagsmálum í íþróttafréttum á Stöð 2 í kvöld klukkan 18.55. Þess má geta að Indiana vann leikinn 97-82. Átta aðrir leikir voru í deildinni í gær. Seattle lagði Toronto að velli 101-94, San Antonio vann Boston 92-84, Miami marði Utah 107- 105 eftir framlengingu, Dallas bar sigurorð af New York Knicks 103-101, Denver skellti Chicago 99-81, Phoenix vann góðan sigur á Lakers 107-102, Portland vann Milwaukee 110-98 og Sacramento bar sigurorð af Memphis 107-105.
Íþróttir Mest lesið „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ Körfubolti Ferill Jake Paul í hættu Sport Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Körfubolti Egyptaland - Ísland 30-31 | Skoruðu síðustu fjögur mörkin og tryggðu sér sigur Handbolti Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Körfubolti McIlroy þurfti að hætta eftir þrjár holur Golf Blaðamannafundur KSÍ: Arnar valdi hóp sem mætir heimsmeisturunum Fótbolti Skrípamark kom í veg fyrir að Ronaldo yrði meistari í gær Fótbolti Heyrðu samskipti dómara í stærsta atviki tímabilsins Enski boltinn „Einhver barnaskapur held ég“ Körfubolti Fleiri fréttir Andri Lucas skrifar undir langtímasamning Þetta er svo asnalegt hjá Kane Ármann yngir upp um þrjátíu ár Egyptaland - Ísland 30-31 | Skoruðu síðustu fjögur mörkin og tryggðu sér sigur Tilkynntu komu Arnars til stórliðsins á meðan hann spilaði landsleik Brást illa við spurningu um svindl og sleit fundinum: „Sýndu smá virðingu“ Arnar velur tvo landsliðshópa: Viktor Bjarki fær kallið Blaðamannafundur KSÍ: Arnar valdi hóp sem mætir heimsmeisturunum „Þetta er allt annað Fram-lið“ Besta deildin áfram á Sýn Sport Dagbjartur einu skrefi frá Opna bandaríska Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Munu mæla með því við Ratcliffe að ráða Carrick Gísli Þorgeir útskýrir fjarveru sína: „Ber ekkert nema virðingu fyrir landsliðinu“ Skrípamark kom í veg fyrir að Ronaldo yrði meistari í gær Fyrsti samkynhneigði leikmaður NBA deildarinnar er látinn „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ McIlroy þurfti að hætta eftir þrjár holur Heyrðu samskipti dómara í stærsta atviki tímabilsins HSÍ verður að fá pening frá ríkinu Dagskráin í dag: Allt undir hjá City og Benóný í umspili Ferill Jake Paul í hættu „Einhver barnaskapur held ég“ Byrjaði níu leiki en valinn bestur „Hlakkaði til að koma hingað eftir síðasta leik“ Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Southampton einum sigri frá ensku úrvalsdeildinni „Gríðarlega stoltur af leikmönnum mínum“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg „Ofboðslega stolt af því að standa hér sem sigurvegari“ Sjá meira