Innlent

Byssumaðurinn látinn laus

MYND/Vísir
Tæplega þrítugur karlmaður, sem lögregla og sérsveitarmenn handtóku eftir að hann mundaði veiðiriffil og hleypti af skotum í miðbæ Akureyrar í gærkvöld, hefur verið látinn laus. Umsátursástand var í bænum en lögregla girti af Aðalstræti og nærliggjandi götur þar til maðurinn gafst upp og var færður í fangageymslur. Myndin er af lögreglustöðinni á Akureyri.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×