Umfangsmikið LSD smygl upplýst 18. september 2004 00:01
Karlmaður á þrítugsaldri var úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald í dag í tengslum við umfangsmikið smygl á LSD ofskynjunarlyfinu. Fíkniefnin voru send til landsins frá Hollandi með pósti og komst upp um málið í vikunni með samvinnu lögreglu og tollgæslu í Reykjavík og lögreglu í Vestmannaeyjum. Ekki fæst uppgefið hjá lögreglunni í Reykjavík hversu stór sendingin var, nema að málið telst stórt. Stærsta LSD smygl sem tekist hefur að koma upp um hér á landi var 3000 skammtar árið 1997. Það þykir mikið og má til samanburðar nefna að sænska lögreglan lagði hald á þúsund skammta allt síðasta ár. Eins og fyrr segir vill lögreglan ekki gefa upp magnið sem nú var haldlagt, né hvort að þessi smygltilraun sé umfangsmeiri en sú sem komst upp um árið 1997. Fíkniefnin sem haldlögð voru í vikunni, voru á pappírsörkum sem vættar höfðu verið í LSD-sýru. Í gær var karlmaður um þrítugt handtekinn í Vestmannaeyjum í tengslum við málið. Hann var fluttur í gær frá Vestmannaeyjum á Bakkaflugvöll í Landeyjum þar sem Reykjavíkurlögreglan tók hann í sína vörslu. Maðurinn hefur nokkrum sinnum komið við sögu lögreglu áður vegna fíkniefnamála, en ekki í neinu máli jafn stóru þessu. Lögreglan fór í dag fram á að hann yrði úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald og varð Héraðsdómur Reykjavíkur við því.
Fréttir Innlent Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Innlent Einn þeirra handteknu sautján ára Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Innlent Fleiri fréttir Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Sjá meira