Forsendur kjarasamninga bresta 28. október 2004 00:01
Alþýðusamband Íslands spáir því að verðbólga verði rúm fjögur prósent á næsta ári og forsendur kjarasamninga bresti. Ólafur Darri Ólafsson, hagfræðingur samtakanna, sakaði stjórnvöld um að beita atvinnuleysi sem hagstjórnartæki á ársfundi ASÍ í dag. Þótt hagdeild ASÍ segi efnahagshorfur um margt góðar segir að lítið megi út af bera til að gerð verði sömu mistök í hagstjórn og á árunum 1999 til 2002 og stöðugleikanum verði ógnað. Veruleg hætta sé á því að kjarasamningum verði sagt upp í árslok 2005 ef verðbólga vex jafn hratt og spáin gerir ráð fyrir. Ólafur Darri segir að Seðlabankinn sé látinn bera nær alla ábyrgð á að halda þenslunni í skefjum og þá með stýrivaxtahækkunum. Það sé hins vegar mjög sársaukafullt fyrir heimilin. Hann segir að það sem ASÍ hafi verið að kalla eftir sé að ríkisvaldið noti ríkisfjármálin til að hamla gegn þenslu. „Það þýðir á mannamáli að það þarf að vera með aðhaldssöm fjárlög. Við getum ekki merkt mikið aðhald í fjárlögunum og óttumst að þau frekar kyndi undir verðbólgunni en að slá á hana,“ segir Ólafur Darri. Búist er við góðum hagvexti fram til ársins 2006, örlítið dragi úr atvinnuleysi og verði nálægt þremur prósentum á árunum 2005 til 2006. Svo mikið atvinnuleysi er óvanalegt þegar hagvöxtur er mikil Ólafur Darri segir það í takt við hugmyndir á undanförnum árum um að beita atvinnuleysi sem hagstjórnartæki. Þær hafi til að mynda birst í innflutningi á lágt launuðu vinnuafli sem búi við slæmt atlæti meðan atvinnuleysistölur hreyfist lítið. Ólafur Darri segir þetta óviðunandi og segir ASÍ leggja áherslu á að farið verði í gegnum góðærið framundan með því að ganga hægt um gleðinnar dyr í ríkisútgjöldum, fresta framkvæmdum og einhverjum atriðum í ríksrekstri sem hugsanlega mættu bíða í 1-2 ár. Þar með væri hægt að stuðla að lægri verðbólgu.
Fréttir Innlent Mest lesið Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Innlent Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Innlent Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Erlent Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Fleiri fréttir Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Ekkert bóli á sleggjunni að ári liðnu Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Sjá meira