Norðurljós dótturfélag Og Vodafone 28. október 2004 00:01
Norðurljós eru orðin dótturfélag Og Vodafone. Fjölmiðlar Norðurljósa, þar á meðal Stöð 2 og Bylgjan, verða þar með skráðir í Kauphöll Íslands. Jafnframt eru gerðar skipulagsbreytingar sem fela í sér framkvæmdastjóraskipti. Sigurður G. Guðjónsson víkur fyrir Gunnari Smára Egilssyni. Nýir stjórnendur kynntu kaupin fyrir starfsfólki Norðurljósa í hádeginu og tóku sérstaklega fram að staðinn yrði vörður um ritstjórnarlegt sjálfstæði fjölmiðlanna. Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður Norðurljósa, segir að hluthafar Norðurljósa taki yfir hlutafjáreign félagsins í Og Vodafone, og, Og Vodafone kaupir Norðurljós. Hann segir fjölmörg tækifæri liggja í samstarfi þessara félaga. Einnig er hagurinn í þessu sá að nú verði til skráð fjölmiðlafyrirtæki sem hafi verið markmið eigenda Norðurljósa í nokkuð langan tíma. Jafnhliða hættir Sigurður G. Guðjónsson störfum sem framkvæmdastjóri. Skarphéðinn segir hann staðið sig einstaklega vel og komið fyrirtækinu úr því að vera nánast gjaldþrota og í það sem það er í dag. „Leiðir skilja núna og við þökkum honum fyrir vel unnin störf,“ segir Skarphéðinn. Auk Sigurðar hætta Marinó Guðmundsson fjármálastjóri og Karl Garðarsson rekstrarstjóri. Gunnar Smári Egilsson, útgáfustjóri Fréttar, verður nýr framkvæmdastjóri og Hermann Hermannsson fjármálastjóri. Gunnar Smári engar stórvægilegar breytingar á dagskránni. Starfsfólki verði ekki fækkað heldur þvert á móti. Hann segir framrásina sem verið er að skipuleggja felast annars vegar í því að efla þá miðla sem séu til staðar og hins vegar að stofna nýja, án þess að vilja fara nánar út í þá sálma. Þó segir í tilkynningu til starfsfólks Norðurljósa í dag að með samvinnu við símarekstur megi þróa svokallaða nýmiðlun á Netinu, í síma og stafrænu sjónvarpi.
Fréttir Innlent Mest lesið Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Fleiri fréttir Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Sjá meira