Teppakaupin ekki einu einkaerindin 28. október 2004 00:01
Teppakaup yfirmanns flugvallarins í Kabúl, sem enduðu með hryðjuverkaárás um síðustu helgi, eru ekki einu einkaerindin sem skotið hafa íslenskum friðargæsluliðum skelk í bringu. Friðargæsluliðarnir sem særðust eru væntanlegir heim til Íslands á morgun. Engar reglur virðast hafa verið brotnar þegar friðargæsluliðarnir voru látnir bíða við teppabúðina á Kjúklingastræti eftir því að yfirmaður þeirra keypti teppi. Hins vegar tók það svo langan tíma að hryðjuverkamaður hafði tóm til að undirbúa og gera árás á þá með þeim afleiðingum að tveir almennir borgarar létu lífið og þrír friðargæsluliðar særðust; þeirra þriggja er von til Íslands á morgun. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu reyndu þeir ítrekað að reka á eftir yfirmanni sínum og hlupu inn til hans eftir árásina með hjálm handa honum og skothelt vesti. Fréttastofu hefur ekki tekist að ná símasambandi við téðan mann í dag til að bera upplýsingarnar undir hann. Kurr ólgar vegna þess að friðagæsluliðarnir urðu að leggja sig í hættu af slíku tilefni og á dagbókarsíðu íslensks friðargæsluliða á Netinu kemur fram að friðargæsluliðar hafi áður verið uggandi vegna sendiferðar inn í Kabúl. Í það skiptið voru þeir á höttunum eftir örbylgjuofni til að geta poppað í kvikmyndahúsi í herbúðunum, villtust inn í þröngar götur og voru þeirri stund fegnastir þegar þeir loksins sluppu úr rangölunum og komust aftur heim - án þess þó að hafa fundið nokkurn örbylgjuofn. Á sömu síðu er karlmennska friðargæsluliðanna sem særðust mærð í besta hermannastíl og því lofað að þeir snúi aftur eins og höggnir úr stein. Utanríkisráðuneytið hefur aflað sér skýrslna um árásina á laugardaginn var en þær eru, að mati ráðuneytisins, trúnaðargögn.
Fréttir Innlent Mest lesið Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Innlent Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Innlent Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Erlent Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Fleiri fréttir Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Ekkert bóli á sleggjunni að ári liðnu Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Sjá meira