Og Fjarskipti keyptu 90% hlutafjár 28. október 2004 00:01
Eignarhaldsfélagið Og Fjarskipti hefur keypt 90 prósent hlutafjár í Norðurljósum sem reka sex útvarpsstöðvar, fjórar sjónvarpsstöðvar, gefa út tvö dagblöð, tímarit og reka netmiðil. Norðurljós verða þar með komin inn á verðbréfamarkaðinn. Stærstu hluthafar í Norðurljósum voru Baugur, Kári Stefánsson, Pálmi Haraldsson og tengd fyrirtæki, Burðarás og Hömlur. Þeir frá greitt fyrir hluti sína með hlutabréfum í Og Fjarskiptum og verða þannig áfram óbeinir eigendur að Norðurljósum. Og Fjarskipti eru skráð á verðbréfamarkaði og verða Norðurljós það því sjálfkrafa. Stjórnendur telja að þetta hafi verið besta leiðin til að koma Norðurljósum á almennan markað á sem skemmstum tíma og að æskilegt sé að fjölmiðlafyrirtæki af þessari stærð sé á almennum hlutabréfamarkaði. Jafnframt hefur sú breyting orðið á yfirstjórn Norðurljósa að Sigurður G. Guðjónsson lætur af störfum framkvæmdastjóra Norðurljósa og útvarpsstjóra Íslenska útvarpsfélagsins. Þá hafa Marinó Guðmundsson fjármálastjóri og Karl Garðarsson í yfirstjórn óskað eftir að láta af störfum. Stjórn Norðurljósa ákvað á fundi sínum í gærkvöldi að ráða Gunnar Smára Egilsson framkvæmdastjóra Norðurljósa í stað Sigurðar og Páll Magnússon verður sjónvarpsstjóri Stöðvar 2. Þá tekur Kári Jónasson, fyrrverandi fréttastjóri Ríkisútvarpsins, við ritstjórn Fréttablaðsins á morgun. Nánari útfærsla á skipulagi verður unnin á næstu þremur mánuðum og er stefnt að því í þeirri vinnu að tryggja sjálfstæði einstakra fjölmiðla í eigu fyrirtækisins. Breytingarnar munu ekki leiða til fækkunar starfsmanna Norðurljósa.
Fréttir Innlent Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira