Símreikningar í markaðsstarfi 20. september 2004 00:01
Viðskiptavini fjarskiptafyrirtækisins Og Vodafone var brugðið þegar starfsmaður fyrirtækisins hafði samband við hann, vitnaði til símnotkunar hans og bauð sparnaðarleið ef hann vildi gera bindandi samning til lengri tíma við fyrirtækið. Viðskiptavininum var boðið að bæta við "símavini" gegn því að gerður yrði samningur um heildarsímaþjónustu til 12 mánaða. Var honum bent á hversu mikið hann hefði getað sparað í liðnum mánuði með því að vera með ákveðið símanúmer skráð sem "símavin". Og Vodafone segist starfa innan þess ramma sem fyrirtækinu er markaður í lögum. Pétur Pétursson, forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála hjá Og Vodafone, segir að starfsmenn á sviði viðskiptaverndar bjóði stundum vildarviðskiptavinum sérstök kjör og þarna hafi trúlega verið um slíkt tilvik að ræða. Hann segir alla starfsmenn sem höndla með trúnaðarupplýsingar hafa undirritað trúnaðaryfirlýsingu og áréttaði að ekki hefðu aðrir aðgang að slíkum upplýsingum en þeir sem þyrftu vegna starfssviðs síns. Í níunda kafla fjarskiptalaga, sem fjallar um vernd persónuupplýsinga og friðhelgi einkalífs, segir að "með samþykki áskrifanda" sé fjarskiptafyrirtæki heimilt að vinna úr gögnum vegna markaðssetningar fjarskiptaþjónustu. Auk ákvæðis um samþykki áskrifenda segir að "úrvinnslu gagna samkvæmt þessari grein skulu þeir einir sinna sem eru undir stjórn fjarskiptafyrirtækja og sjá um gerð reikninga eða stjórnun fjarskiptaumferðar, fyrirspurnir notenda, uppljóstrun misferlis, markaðssetningu fjarskiptaþjónustu eða virðisaukandi þjónustu". Áskriftarskilmálar bæði heimasíma- og farsímaþjónustu Og Vodafone eru aðgengilegir á vef fyrirtækisins, en í þeim er ekki kveðið á um að viðskiptavinir samþykki að fyrirtækið vinni úr gögnum vegna markaðssetningar. Persónuvernd sagðist ekki geta skorið úr um það símleiðis hvort brotið væri gegn persónuverndarsjónarmiðum með markaðssetningu Og Vodafone. Sigurjón Ingvason, forstöðumaður lögfræðideildar Póst- og fjarskiptastofnunar, áréttaði að undir ákveðnum kringumstæðum væri fjarskiptafyrirtækjum heimil notkun persónuupplýsinga til markaðssetningar, en kvaðst að óathuguðu máli ekki geta sagt til um þetta einstaka tilvik.
Fréttir Innlent Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira