Ríkið verður að bregðast við 20. september 2004 00:01
Nauðsynlegt er að hið opinbera draga saman seglin til að valda ekki aukinni þenslu í þjóðfélaginu að sögn Ólafs Darra Andrasonar, hagfræðings Alþýðusambands Íslands. Í Fréttablaðinu á laugardaginn lýstu bæði Sigurður Bessason, formaður Eflingar - stéttarfélags, og Halldór Björnsson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, yfir áhyggjum af því að verðbólga væri yfir verðbólgumarkmiðum Seðlabankans. Höfðu þeir áhyggjur af því að sú þróun héldi áfram og að þar með myndu forsendur kjarasamninga bresta. "Þótt ég hafi áhyggjur af ástandinu þá eru forsendur kjarasamninga ekki brostnar," segir Ólafur Darri. "Það eru enn tækifæri til að koma í veg fyrir það. Við leggjum áherslu á að notuð verði þau hagstjórnartæki sem til eru til að koma í veg fyrir að forsendurnar bresti. Það kom okkur ekki á óvart að Seðlabankinn skyldi hækka vexti á föstudaginn. Við tökum líka undir með Seðlabankanum um að ríkisvaldið verði að sýna verulegt aðhald og koma með trúverðuga langtímaáætlun í ríkisfjármálum. Ef skattar verða lækkaðir eins og búið er að boða þá verður að lækka ríkisútgjöld enn frekar." Eftir undirritun kjarasamninganna síðasta vetur, sem voru til fjögurra ára, var skipuð sérstök nefnd sem í sitja fulltrúar verkalýðsforystunnar og Samtaka atvinnulífsins. Nefndin hefur það hlutverk að fara yfir forsendur kjarasamninga. Ólafur Darri, sem situr í nefndinni, segir að næsta haust muni nefndin hittast og fara yfir málin. Aðspurður hvort útlit sé fyrir að það geti gerst fyrr segist hann ekki eiga von á því. Hann segir að ef komist verði að þeirri niðurstöðu næsta haust að forsendur séu brostnar geti einstök félög sagt upp kjarasamningum, ef það gerist verði þeir lausir um áramótin 2006. Í desember árið 2001 gerðu Alþýðusambandið, Samtök atvinnulífsins og ríkið samkomulag um aðgerðir til stemma stigu við verðbólgu. Þá var dregið svokallað rautt strik sem verðbólgan átti að vera undir. Ólafur Darri segir að staðan sé svolítið önnur núna. "Við erum að horfa fram á að hlutirnir geti farið úr böndunum en í desember 2001 voru þeir farnir úr böndunum," segir Ólafur Darri. "Það sem við erum að gera núna er að koma með varnaðarorð til þess að koma í veg fyrir að slíkt gerist aftur."
Fréttir Innlent Mest lesið Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Sérsveitarmenn um borð í Þór Innlent Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Erlent Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Innlent „Það koma bara færri“ Innlent „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Innlent Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Erlent Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Erlent Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notuðust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Hætta á að námsframboð dragist saman Sjá meira